Faðernismál og skyldleikarannsóknir
Meinafræðideild framkvæmir rannsóknir til að staðfesta eða véfengja faðerni barna.
Flestar rannsóknir eru gerðar að beiðni Héraðsdóma, Sýslumanna eða Barnaverndar.
Upplýsingar um feðrun barns fyrir dómstólum eru hér: https://island.is/fedrun-barns/fadernismal-fyrir-domstolum
Vefsíðan veitir einnig upplýsingar um rétt barna til að þekkja uppruna sinn og hvernig feðrun fer fram.
Dómsmál (beiðnir frá héraðsdómum eða sýslumönnum):
Beiðni um rannsókn þarf að berast deildinni áður en tímabókun fyrir sýnatöku fer fram.
Fyrstu skref eru að hafa samband við lögfræðing, sem leiðir málið áfram með tilheyrandi embætti.
Einkamál (beiðnir frá einstaklingum eða Barnavernd):
Í einkamálum er einn aðili ábyrgur fyrir þátttakendum og veitir upplýsingar um nöfn, kennitölur, heimilisfang og símanúmer.
Rannsókn hefst ekki fyrr en greiðsla hefur borist (sjá gjaldskrá).
Mikilvægar athugasemdir:
Ef nota á lífsýni frá látnum einstaklingi, þarf dómaraúrskurð frá Héraðsdómi.
Það eykur öryggi niðurstaðna ef móðir gefur sýni til rannsóknarinnar.
Þátttakendur þurfa að undirrita samþykkisyfirlýsingu þegar sýni (blóð eða munnstrok) er tekið.
Gild skilríki (ökuskírteini, vegabréf eða nafnskírteini) skulu framvísað við sýnatöku.
Breyting á föðurnafni krefst að höfða véfengingarmál fyrir dómstólum.
Frekari upplýsingar:
Sími: 543-8061
Netfang: fadernismal@landspitali.is
