Um deildina
Deildin skoðar vefjasýni og líffæri til sjúkdómsgreiningar.
Flest sýni eru unnin og skoðuð í smásjá af sérfræðilæknum í meinafræði.
Niðurstöður liggja yfirleitt fyrir á 1–4 dögum; sumar sérhæfðar rannsóknir taka lengri tíma.
Deildin sinnir einnig krufningum:
Sjúkrahúskrufningar greina eðli og umfang sjúkdóma.
Réttarkrufningar eru framkvæmdar að beiðni lögreglu við skyndidauða eða grun um voveiflegt mannslát.
