Geðþjónusta Landspítala
Markmið geðþjónustu Landspítala er að veita örugga og góða þjónustu.
Deildir:
Teymi:
Ábendingar til geðþjónustu Landspítala
Ábendingar eru vel þegnar, því þær geta hjálpað við að bæta þjónustuna. Allir sem hafa fengið þjónustu hjá Landspítala og aðstandendur þeirra geta komið með ábendingar og kvartanir. Ef kvartanir eða ábendingar eru lagðar fram fyrir hönd annars einstaklings þarf skriflegt umboð viðkomandi að fylgja.
Trúnaður
Til að skoða kvörtun þína getur þurft að deila upplýsingum úr sjúkraskrá með viðeigandi meðferðaraðilum og stjórnendum sem vinna í geðþjónustunni. Fyllsta trúnaðar er ávallt gætt.
Viðbrögð við ábendingum og kvörtunum
Geðþjónusta Landspítala leitast við að svara öllum ábendingum og kvörtunum sem komið er á framfæri undir nafni eins fljótt og hægt er. Ef þú telur viðbrögð Landspítala við ábendingum eða kvörtunum vegna þjónustunnar vera ófullnægjandi kann að vera tilefni til að beina erindinu til embættis landlæknis eða Heilbrigðisráðuneytisins.
Hvaða leiðir eru í boði?
1. Gegnum vef Landspítala undir flipanum Hafa samband eru nokkrir valmöguleikar:
Athugasemd vegna heilbrigðisþjónustu - erindið berst til stjórnsýsludeildar klínískrar þjónustu og jafngildir erindi til yfirstjórnar spítalans.
Talskona sjúklinga - senda inn ábendingu, tillögu eða hrós til talskonu sjúklinga sem skoðar erindið og beinir því áfram til stjórnenda.
2. Notendaráð geðþjónustunnar.
Hægt er að hafa samband við notendaráð eftir nokkrum leiðum:
gegnum tölvupóst: notendarad.ged@landspitali.is
senda sms í síma 621 8422 og fá aðstoð við að koma ábendingum áfram
hringja í síma 621 8422 á virkum dögum milli klukkan 10:00 og 14:00.
Meðlimir notendaráðs eru jafningjar, starfsfólk geðþjónustu sem hefur persónulega reynslu af andlegum veikindum og bataferli og af því að nota úrræði geðþjónustu. Eitt af markmiðum notendaráðs er að gefa sjónarhorni notenda aukið vægi innan geðþjónustu Landspítala til að hafa áhrif á þróun þjónustunnar.
3. Geðhjálp.
Hægt er að hafa samband við sjúklingasamtökin Geðhjálp. Ráðgjafar þeirra veita stuðning og ráðgjöf. Best er að hafa samband í síma 570 1700 eða með tölvupósti: gedhjalp@gedhjalp.is.
Einnig er hægt að koma í Borgartún 30 í Reykjavík klukkan 09:00-15:00 á virkum dögum.
4. Formleg kvörtun vegna meðferðar.
Hægt er að beina formlegri kvörtun til embættis landslæknis ef grunur leikur á að mistök hafi verið gerð eða um vanrækslu hafi verið að ræða í meðferð á spítalanum. Upplýsingar er að finna hér.
