Fara beint í efnið
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða

Barna- og fjölskyldustofa

SÓK meðferð - Sálfræðiþjónusta fyrir börn vegna óviðeigandi kynhegðunar

SÓK-meðferð er sálfræðiþjónusta fyrir börn sem þurfa á aðstoð að halda vegna óviðeigandi eða skaðlegrar kynhegðunar. Barnaverndarþjónustur sveitarfélaga geta vísað áfram í úrræðið.

Meðferðin er í höndum sálfræðinga sem eru sérhæfðir meðferðaraðilar í þjónustu við börn sem sýna óviðeigandi kynhegðun og fjölskyldur þeirra. Þjónustan fer að meginhluta fram á sálfræðistofu þjónustuaðila en hver sálfræðingur vinnur þar sjálfstætt að hverju máli og sér um að boða barn og foreldra (forsjáraðila) til viðtals. 

Þjónustuaðili leggur áherslu á samstarf við starfsmenn barnaverndarþjónustu og eftir atvikum við aðra fagaðila eða stofnanir og veitir faglega ráðgjöf. Samvinna og stuðningur við forsjársaðila barnsins er lykilþáttur í þjónustunni. 

Mat og meðferð

Viðurkennd matstæki og aðferðir á borð við hugræna atferlismeðferð eru notuð til mats á vanda og til meðferðar. 

Matið byggir á eftirfarandi þáttum eftir því sem við á hverju sinni: 

  • Viðtölum við hlutaðeigandi aðila 

  • Niðurstöðum úr sálfræðilegum prófum

  • Mati á hugsanlegum áhættuþáttum 

  • Gögnum svo sem skýrslum frá barnaverndarþjónustu

  • Lögregluskýrslum

  • Geðheilbrigðis- eða þroskamati.

Meðferðarvinnan snýr ávallt að því að draga úr líkum á frekari óviðeigandi kynhegðun og að barnið öðlist aukna færni til að sýna viðeigandi og félagsvæna hegðun. Umfang meðferðarvinnu er að öllu jöfnu háð vægi og samspili áhættu- og verndandi þátta.

Meðferð barna felur meðal annars í sér fræðslu um kynferðisleg mörk, áhrif og afleiðingar óviðeigandi kynhegðunar, fræðslu til forráðamanna um viðeigandi og óviðeigandi kynhegðun barna, fræðslu um kynferðisleg mörk. Unnið er markvisst að því að draga úr áhættuþáttum sem fram koma í matsferlinu og ýta undir styrkleika sem geta dregið úr líkum á frekari óviðeigandi eða skaðlegri kynhegðun. Meðferðartíminn er mismunandi eftir umfangi, aldri og þroska barns.

Tilvísun og gjald

Meðferðin kemur til að uppleggi barnaverndarþjónustu í sveitarfélagi viðkomandi. Mikilvægt er að forsjáraðilar barna veiti samþykki sitt fyrir þjónustunni og að öðrum kosti leiti barnaverndarþjónusta viðeigandi leiða samkvæmt barnaverndarlögum. 

Gert er ráð fyrir ákveðnu hóflegu gjaldi fyrir barnaverndarþjónustu vegna áhættumats og meðferðar og mun Barna- og fjölskyldustofa innheimta þann kostnað frá viðkomandi þjónustum. Handleiðsla og ráðgjöf, sbr. kafli 2, er barnaverndarþjónustum að kostnaðarlausu. Barnaverndarþjónustur greiða ferðakostnað sálfræðinganna.

Handleiðsla og ráðgjöf

Hluti af þjónustunni er handleiðsla til starfsmanna barnaverndarþjónustu ef Barna- og fjölskyldustofa telur þörf á. Þetta getur átt við í vafamálum, til dæmis þegar enn stendur yfir könnun máls hjá barnaverndarþjónustu eða þar sem kynferðislega hegðunin er hluti af stærri og flóknari vanda. Í slíkum tilfellum útvegar Barna- og fjölskyldustofa 1-2 ráðgjafar- og handleiðslufundi fyrir starfsmann barnaverndarþjónustu með viðkomandi sálfræðingi og eftir aðstæðum getur verið um símafund að ræða. Þessir aðilar meta síðan þörf fyrir áframhald, þ.e. hvort málinu telst þar með lokið eða hvort ákveðið er að sækja um mat og meðferð.

Lok meðferðar og eftirfylgd

Við lok meðferðar skilar sálfræðingur skýrslu til barnaverndarþjónustu og Barna- og fjölskyldustofu ásamt því að boða til skilafundar með starfsmanni barnaverndarþjónustu og forsjáraðilum. Á skilafundi er farið yfir niðurstöður mats og árangurs meðferðar. Skilafundur fer fram á sálfræðistofu þjónustuaðila þegar því verður komið við en eftir aðstæðum í heimabyggð barns. Þjónustuaðili sinnir eftirfylgd í málum þar sem þess er talið þörf. Jafnan er miðað við 3–4 eftirfylgdarviðtöl á u.þ.b. árstímabili. Í samráði við starfsmann barnaverndarþjónustu metur þjónustuaðili hvort árangur meðferðar verði betur tryggður með því að hluti eftirfylgdarviðtala fari fram í eða nálægt heimabyggð barns.

Ef upp kemur grunur um frekari óviðeigandi kynhegðun eftir að skilafundur hefur átt sér stað eða á meðan eftirfylgd stendur skal þjónustuaðili ráðleggja og vera í samráði við viðkomandi barnaverndarþjónustu og Barna- og fjölskyldustofu sem leggja sameiginlega mat á viðeigandi viðbrögð.