Fara beint í efnið
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða

Barna- og fjölskyldustofa

MST meðferð fyrir börn með hegðunar- og fíknivanda

Börn sem glíma við alvarlegan hegðunarvanda sem birtist í afskiptum lögreglu, erfiðleikum í skóla, ofbeldi og vímuefnanotkun þurfa á aðstoð að halda. MST er meðferðarúrræði á vegum Barna- og fjölskyldustofu fyrir fjölskyldur barna á aldrinum 12-18 ára sem glíma við alvarlegan hegðunarvanda. Barnaverndarþjónustur um allt land geta vísað áfram í úrræðið og meðferðin stendur til boða um land allt.

Markmið meðferðar

  • Að barn búi heima hjá sér

  • Að barn stundi skóla eða vinnu

  • Að barn komist ekki í kast við lögin

  • Að barn noti ekki vímuefni

  • Að barn beiti ekki ofbeldi eða hótunum

Meðferðin

Meðferðin sem tekur öllu jöfnu 3-5 mánuði felst fyrst og fremst í að auka færni foreldra til að takast á við vanda barna sinna. Almennt er stefnt að því að bæta samskipti og samheldni innan fjölskyldunnar, tengsl og samráð foreldra og skóla og annarra lykilaðila í umhverfi barnsins. MST meðferðin snýr því að öllu nærumhverfi barnsins: foreldrum, fjölskyldu, félagahópi, skóla og tómstundum.

Meðferðin fer fram á heimili fjölskyldunnar og gerir þá kröfu að barnið búi á heimilinu. Sérhæfður meðferðaraðili hittir foreldra, og eftir aðstæðum barn, á heimili þeirra eftir samkomulagi. Foreldrar hafa jafnframt aðgengi að meðferðaraðila til ráðgjafar í síma allan sólarhringinn. 

Aðlögun að þörfum hverrar fjölskyldu

Í sameiningu eru sett skýr meðferðarmarkmið sem taka mið af vanda hvers barns, hvernig megi draga úr vandanum og efla bjargráð foreldra. Meðferðin er aðlöguð að þörfum hverrar fjölskyldu. Áhersla er lögð á að finna leiðir sem henta styrkleikum einstaklinga og í umhverfinu.

Staða barns með tilliti til markmiða er metin í hverri viku og leiðir að markmiðum endurskoðaðar eftir þörfum.

Gæðaeftirlit

MST aðferðin hefur verið þróuð út frá rannsóknum á því hvað virkar í meðferð við hegðunarvanda og meðferðaraðilar og teymisstjórar fá reglulega þjálfun í aðferðum MST. Til að tryggja gæði meðferðar er reglulega kannað með matslista hvort meðferðaraðilar halda sig við sannreyndar aðferðir MST. 

Teymisstjóri veitir meðferðaraðilum vikulega faghandleiðslu í samráði við utanaðkomandi MST sérfræðing. Þar fer fram greining á framgangi meðferðar og meðferðarinngripum.

Árangursmat

Einstaklingsbundin markmið geta verið mismunandi en endurspeglast með einum eða öðrum hætti í heildarmarkmiðum: að barnið geti búið heima, stundi skóla eða vinnu, komist ekki í kast við lögin, noti ekki vímuefni eða beiti ekki ofbeldi eða hótunum. Árangur af meðferðinni er metinn miðað við stöðu heildarmarkmiða í byrjun meðferðar og þegar henni lýkur en einnig eftir 6, 12 og 18 mánuði.