Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Eldri útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 13. apríl 2018 – 14. nóv. 2019 Sjá núgildandi
Sýnir breytingar gerðar 13. apríl 2018 af rg.nr. 362/2018

674/2017

Reglugerð um heilbrigðisreglur að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis.

1. gr. Innleiðing.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi EB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1069/2009 frá 21. október 2009 um heilbrigðisreglur að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 1774/2002 (reglugerð um aukaafurðir úr dýrum). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 197/2015, frá 25. september 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63, frá 15. október 2015, bls. 1152 og einnig sem fylgiskjal I við reglugerð þessa.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 142/2011 frá 25. febrúar 2011 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1069/2009 um heilbrigðisreglur, að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis, og um framkvæmd tilskipunar ráðsins 97/78/EB að því er varðar tiltekin sýni og hluti sem eru undanþegin heilbrigðiseftirliti með dýrum og dýraafurðum á landamærum samkvæmt þeirri tilskipun. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 197/2015, frá 25. september 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63, frá 15. október 2015, bls. 203 og einnig sem fylgiskjal II við reglugerð þessa.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 749/2011 frá 29. júlí 2011 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1069/2009 um heilbrigðisreglur, að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis, og um framkvæmd tilskipunar ráðsins 97/78/EB að því er varðar tiltekin sýni og hluti sem eru undanþegin heilbrigðiseftirliti með dýrum og dýraafurðum á landamærum samkvæmt þeirri tilskipun. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 197/2015, frá 25. september 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63, frá 15. október 2015, bls. 1185 og einnig sem fylgiskjal III við reglugerð þessa.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1063/2012 frá 13. nóvember 2012 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1069/2009 um heilbrigðisreglur, að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis, og um framkvæmd tilskipunar ráðsins 97/78/EB að því er varðar tiltekin sýni og hluti sem eru undanþegin heilbrigðiseftirliti með dýrum og dýraafurðum á landamærum samkvæmt þeirri tilskipun. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 197/2015, frá 25. september 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63, frá 15. október 2015, bls. 1205 og einnig sem fylgiskjal IV við reglugerð þessa.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1097/2012 frá 23. nóvember 2012 um breytingu, með tilliti til sendinga á aukaafurðum úr dýrum og afleiddum afurðum milli aðildarríkjanna, á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1069/2009 um heilbrigðisreglur, að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis, og um framkvæmd tilskipunar ráðsins 97/78/EB að því er varðar tiltekin sýni og hluti sem eru undanþegin heilbrigðiseftirliti með dýrum og dýraafurðum á landamærum samkvæmt þeirri tilskipun. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 182/2013, frá 8. nóvember 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64, frá 14. nóvember 2013, bls. 165 og einnig sem fylgiskjal V við reglugerð þessa.
  6. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 294/2013 frá 14. mars 2013 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1069/2009 um heilbrigðisreglur, að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis, og um framkvæmd tilskipunar ráðsins 97/78/EB að því er varðar tiltekin sýni og hluti sem eru undanþegin heilbrigðiseftirlit með dýrum og dýraafurðum á landamærum samkvæmt þeirri tilskipun. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 198/2015, frá 25. september 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63, frá 15. október 2015, bls. 1223 og einnig sem fylgiskjal VI við reglugerð þessa.
  7. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 717/2013 frá 25. júlí 2013 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar upplýsingar um velferð dýra í tilteknum fyrirmyndum að heilbrigðisvottorðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 199/2015, frá 25. september 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63, frá 15. október 2015, bls. 1280 og einnig sem fylgiskjal VII við reglugerð þessa.
  8. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 555/2013 frá 14. júní 2013 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar umflutning á tilteknum aukaafurðum úr dýrum frá Bosníu og Hersegóvínu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 197/2015, frá 25. september 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63, frá 15. október 2015, bls. 1213 og einnig sem fylgiskjal VIII við reglugerð þessa.
  9. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 592/2014 frá 3. júní 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar notkun aukaafurða úr dýrum og afleiddra afurða sem eldsneyti í brennsluverum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 197/2015, frá 25. september 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63, frá 15. október 2015, bls. 1215 og einnig sem fylgiskjal IX við reglugerð þessa.
  10. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/9 frá 6. janúar 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1069/2009 um heilbrigðisreglur, að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis, og um framkvæmd tilskipunar ráðsins 97/78/EB að því er varðar tiltekin sýni og hluti sem eru undanþegin heilbrigðiseftirliti með dýrum og dýraafurðum á landamærum samkvæmt þeirri tilskipun. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 200/2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63, frá 15. október 2015, bls. 1298 og einnig sem fylgiskjal X við reglugerð þessa.
  11. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/172 frá 1. febrúar 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar vinnslubreytur fyrir ummyndun aukaafurða úr dýrum í lífgas eða moltu, skilyrði fyrir innflutningi á gæludýrafóðri og fyrir útflutningi á unnum húsdýraáburði. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 155/2017, frá 22. september 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67, frá 19. október 2017, bls. 71.
  12. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/786 frá 8. maí 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar skilgreiningar á fiskimjöli og fiskilýsi. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 155/2017, frá 22. september 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67, frá 19. október 2017, bls. 429.
  13. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/893 frá 24. maí 2017 um breytingu á I. og IV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 999/2001 og X., XIV. og XV. viðauka við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar ákvæði um unnið dýraprótín. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 211/2017 frá 15. desember 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 1. febrúar 2018, bls. 1.
  14.  Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1261 frá 12. júlí 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar staðgönguaðferð við vinnslu á tiltekinni bræddri fitu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2018, frá 9. febrúar 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 14, frá 8. mars 2018, bls. 368.
  15.  Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1262 frá 12. júlí 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar notkun húsdýraáburðar úr alidýrum sem eldsneyti í brennsluverum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2018, frá 9. febrúar 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 14, frá 8. mars 2018, bls. 172.

2. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi tekur ekki til sjávarspendýra.

3. gr. Lögbær yfirvöld.

Matvælastofnun gegnir hlutverki lögbærs yfirvalds í reglugerðum skv. 1. gr. Þó gegnir Umhverfisstofnun hlutverki lögbærs yfirvalds skv. ákvæðum 19. gr., b-, c- og d-lið 1. mgr. 24. gr. reglugerðar (EB) nr. 1069/2009, sbr. 1. gr. og viðkomandi heilbrigðisnefnd gegnir hlutverki lögbærs yfirvalds skv. g-lið 1. mgr. 24. gr. reglugerðar (EB) nr. 1069/2009, sbr. 1. gr. Matvælastofnun og Umhverfisstofnun gegna hlutverki lögbærs yfirvalds skv. 44. og 46. gr. reglugerðar (EB) nr. 1069/2009, sbr. 1. gr., eftir því sem við á.

4. gr. Samþykki fyrir fyrirtækjum eða stöðvum.

Fyrirtæki eða stöðvar, sbr. 24. gr. reglugerðar (EB) nr. 1069/2009, sbr. 1. gr., skulu hafa viðeigandi leyfi stjórnvalda samkvæmt lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og/eða lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.

5. gr. Eftirlit.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerða skv. 1. gr. sé framfylgt. Þó tekur Umhverfisstofnun við eftirliti með aukaafurðum dýra þegar þær eru komnar í hendur rekstraraðila sem fjallað er um í b-, c-, d- og g-lið 1. mgr. 24. gr. reglugerðar (EB) nr. 1069/2009, sbr. 1. gr.

6. gr. Notkun á moltu og kjötmjöli á beitilönd eða lönd sem notuð eru til fóðurgerðar.

Ef nýta á land til beitar eða fóðurframleiðslu má ekki bera á það moltu eða kjötmjöl síðar en 1. nóvember árið áður og skal landið þá friðað fyrir beit a.m.k. til 1. apríl.

Þó er heimilt að bera moltu og kjötmjöl að vori á land sem síðan er unnið til túnræktar, kornræktar eða til ræktunar einærra fóðurjurta, enda sé borið á landið áður en jarðvinnsla fer fram þannig að moltan eða kjötmjölið gangi niður í jarðveginn.

Umbúðir og fylgiseðlar áburðar úr kjötmjöli og moltu skulu merktar með eftirfarandi áletrun: "Lífrænn áburður eða jarðvegsbætandi efni - Ef nýta á land til beitar eða fóðurframleiðslu má ekki bera á það moltu eða kjötmjöl síðar en 1. nóvember árið áður og skal landið þá friðað fyrir beit a.m.k. til 1. apríl."

7. gr. Markaðssetning og notkun á kjötmjöli sem áburði.

Kjötmjöl, sem er markaðssett eða notað sem áburður skal blandað með nægu magni af viðurkenndum efnum, sem hindra að það sé notað sem fóður. Þessi efni geta verið kalk, húsdýraáburður, húsdýraþvag, molta eða leifar frá lífgasframleiðslu eða önnur efni t.d. ólífrænn áburður, sem eru óæt og fyrirbyggja nýtingu kjötmjölsins í fóður. Efnin skulu vera viðurkennd af Matvælastofnun og skal blöndunin fara fram á framleiðslustað kjötmjölsins.

8. gr. Þvingunarúrræði og viðurlög.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, lögum nr. 96/1997, um slátrun og sláturafurðir, lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

9. gr. Lagastoð.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 13. og 29. gr. a laga nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og 17. gr. a laga nr. 96/1997, um slátrun og sláturafurðir.

10. gr. Gildistaka.

Reglugerðin öðlast þegar gildi. Á sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 108/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1774/2002 um heilbrigðisreglur um aukaafurðir úr dýrum sem ekki eru ætlaðar til manneldis, auk áorðinna breytinga.

Athugasemdir ritstjóra

 Varðandi áhrif 1. gr. reglugerðar 362/2018 þá hefur m. liður þegar bæst við og því metið sem svo að stafliðir komi í beinu framhaldi og verði stafliðir n. og o.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.