Í þessum pósti lítum við yfir kraftmikla og árangursríka fyrstu mánuði ársins, þar sem skýr stefna, markviss framkvæmd og öflug samvinna starfsfólks hefur skilað sér í sýnilegum framförum í þjónustu við íbúa umdæmisins. Með nýrri stefnu HSU til ársins 2030 höfum við sett skýra sýn til framtíðar þar sem áhersla er lögð á framsækna þjónustu, eftirsóknarverðan vinnustað, gæða- og öryggismenningu og ábyrgan rekstur.