10000 leitarniðurstöður
Vinnumálastofnun býður döff innflytjendum upp á framhaldsnámskeið í íslensku táknmáli.
Lögreglunni bárust rétt tæplega 900 tilkynningar um heimilisofbeldi á fyrstu níu mánuðum ársins 2025. Þetta er 7% hækkun frá sama tímabili árið 2024, þegar tilkynningar voru 835. Miðað við meðaltal síðustu þriggja ára, 854 tilkynningar, er þetta 5% aukning.
Hollvinasamtök um heilbrigðisþjónustu á Fljótsdalshéraði (HHF) hafa afhent hjúkrunarfræðingum Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) tólf endurlífgunardúkkur til notkunar við kennslu og fræðslu í skyndihjálp og endurlífgun.
Hljóðbókasafn Íslands hlaut á dögunum kærkominn viðbótarstyrk úr Skerfi, sem er sjóður máltækniáætlunar ríkisins eða Almannaróms, að upphæð kr. 4.135.000.
Mikil ánægja mælist með þjónustu heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu í nýjustu könnun Sjúkratrygginga Íslands. Ánægja með þjónustu og viðmót starfsfólks er sérstaklega mikið og lítill munur á milli stöðva sem reknar eru af Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) og stöðva sem reknar eru af einkaaðilum.
Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Miklubraut, Suðurströnd, Vesturlandsvegi, Sogavegi, Skógarseli og Suðurlandsvegi.
Endurhæfingardeild HVE Stykkishólmi fékk veglega gjöf.
Hæstiréttur tók á móti gestum
Í dag, 24. október, á alþjóðlegum degi tileinkuðum mænuveiki, leggjum við áherslu á mikilvægi bólusetninga og vöktunar til að ná settu markmiði að útrýma mænuveiki á heimsvísu. Markmið sem Alþjóðaheilbrigðisþingið setti árið 1988.
Þann 17. september næstkomandi mun embætti landlæknis standa fyrir málþingi á alþjóðlegum degi sjúklingaöryggis.