10000 leitarniðurstöður
Vinnueftirlitið hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2025 og er það fjórða árið í röð sem stofnunin hlýtur þann heiður.
Nú hafa yfir milljón stafrænar umsóknir verið afgreiddar innan Umsóknakerfis Ísland.is.
Hinn sívinsæli Bangsaspítali verður opinn fyrir slasaða eða veika bangsa laugardaginn 11. október. Bangsar og eigendur þeirra eru velkomnir á heilsugæslustöðina á Akureyri í Sunnuhlið þar sem læknanemar taka á móti þeim.
Í tilefni dags hvíta stafsins verður opið hús hjá Sjónstöðinni í Hamrahlíð 17, 6. hæð, miðvikudaginn 15. október, milli kl. 14:00-16:00.
Lögreglan á landsvísu fékk 612 tilkynningar um heimilisofbeldi á tímabilinu janúar 2025 til og með júní 2025 sem jafngildir um 102 slíkum tilvikum á mánuði að meðaltali. Tilvik á árinu voru 5% fleiri samanborið við meðaltal sama tímabils síðustu þriggja ára á undan.
Sameiginleg frétt Fiskistofu, Matvælastofnunar, og Hafrannsóknastofnunar um stöðu upprunagreininga laxa sem veiðst hafa.
Fjársýsludagurinn verður 13. nóvember 2025
Nú stendur til að endurskoða námsefni á unglingastigi og þess vegna auglýsum við eftir náttúrugreinakennurum á því stigi í starfshóp. Hlutverk starfshópsins verður að meta stöðu námsefnis á unglingastigi og leggja fram tillögur að næstu skrefum í námsefnisgerð í samvinnu við ritstjóra og ytri sérfræðinga.
Stafrænt Ísland heldur áfram að þróa og bæta stafrænar lausnir með reglulegum uppfærslum á bæði kjarnaþjónustum og einstökum stafrænum þjónustum. Með nýjustu uppfærslunni kynnum við bæði nýja virkni og viðbætur og lagfæringar sem miða að því að auka öryggi, bæta notendaupplifun og einfalda þjónustuferla fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki.
Starfamessa 2025