9874 leitarniðurstöður
Ljóst er að þær sérstöku aðstæður sem sköpuðust í upphafi árs 2020 vegna kórónuveirufaraldursins hafa valdið því að menntastofnanir hafa þurft að fást við breytt starfs- og námsumhverfi. Í því umhverfi er mikilvægt að geta notað þær tæknilausnir sem til eru, bæði til heimanáms, kennslu, próftöku og samskipta skóla og heimilis.
Lífsbrú – miðstöð sjálfsvígsforvarna hjá embætti landlæknis hefur lokið gerð uppfærðs öryggisgátlista sem ætlað er að styðja við öruggara umhverfi á sjúkra- og meðferðarstofnunum, búsetukjörnum og hjúkrunarheimilum. Listinn er unninn í samræmi við aðgerð 3.3 í aðgerðaráætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi.
Dagana 28.-29. janúar 2020 fór fram 17. fundur Evrópska persónuverndarráðsins (EDPB) en hann sitja fulltrúar allra persónuverndarstofnana innan EES og evrópsku persónuverndarstofnunarinnar (EDPS).
Barnamenningarsjóður úthlutar styrkjum í áttunda sinn en Barnamenningarsjóður var afmælisgjöf Alþingis til íslenskra barna í tilefni 100 ára afmælis fullveldisins
Viðurkenning Rannís fyrir vísindamiðlun var afhent við opnun Vísindavöku þann 27. september og tóku þær Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri, og Dana Rán Jónsdóttir, verkefnastjóri Vísindaskóla unga fólksins, við viðurkenningunni.
Mógilsá við Kollafjörð verður áfram miðstöð skógræktarstarfsemi þótt Land og skógur verði ekki lengur þar með fasta starfstöð. Skógræktarfélag Íslands flytur skrifstofu sína þangað áður en langt um líður og sömuleiðis hreiðrar Skógræktarfélag Reykjavíkur þar um sig með hluta starfsemi sinnar til að byrja með. Samkomulag þessa efnis var undirritað á Fagráðstefnu skógræktar á Hellu í síðustu viku. Mógilsá verður miðstöð skógræktar, fræðslu og samfélagslegrar þátttöku.