NTÍ minnti sveitarfélög á ábyrgð sína þegar kemur að byggð á hættusvæðum með bréfi dags. 10. september 2025. Vísað var til 16. gr. laga nr. 55/1992 sem takmarkar bótarétt þegar byggt er á svæðum þar sem náttúruvá er fyrir fram þekkt, m.a. vegna vatns- og sjávarflóða.
Sveitarfélög eru hvött til að uppfæra áhættumat, tryggja varnir áður en framkvæmdir hefjast, upplýsa leyfishafa og kaupendur um áhættu og bótarétt og leita samráðs við viðeigandi stjórnvöld.
NTÍ bætir tjón af völdum náttúruhamfara, en bætur geta skerst eða jafnvel fallið alveg niður ef mannvirki reist á þekktum hættusvæðum eða ef ekkert hefur verið gert til að auka varnir gegn frekari tjónum á stöðum þar sem tjón hafa endurtekið átt sér stað.