10000 leitarniðurstöður
Tveir unglæknar, Kristín Erla Kristjánsdóttir og Daníel Andri Karlsson, hafa undanfarið unnið að umbótaverkefni sem miðar að því að efla nýliðafræðslu og bæta aðgengi að nauðsynlegum upplýsingum. Afurð verkefnisins er ný handbók fyrir unglækna á SAk, sem nú liggur fyrir.
Á ráðstefnu skógasviðs norræna erfðavísindasamstarfsins NordGen um birki sem fram fór á Hellu 17. og 18. september voru tveir íslenskir vísindamenn heiðraðir fyrir starf sitt að erfðafræði birkis, þau Kesara Margrét Anamthawat-Jónsson og Þorsteinn Tómasson.
Hjúkrunarfræðingar á litlum heilsugæslum í dreifbýli sinna oft fjölbreyttari verkefnum en á stærri stöðum. Jóna Ósk Antonsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá HSN í Reykjahlíð, hefur nýlokið meistaragráðu frá Háskólanum á Akureyri með áherslu á heilsugæslu á landsbyggðinni frá Háskólanum á Akureyri.
Samgöngustofa hefur gefið út frammistöðuáætlun Íslands 2025-2029 í flugleiðsöguþjónustu. Áætlunin byggir á alþjóðlegum kröfum og er liður í innleiðingu markmiða um örugga, hagkvæma og umhverfisvæna flugleiðsögu í sam-evrópska loftrýminu (Single European Sky).
Sjúkratryggingar, Klíníkin Ármúla ehf. og Stoðkerfi ehf. í samstarfi við Læknahúsið DEA Medica hafa gert með sér samning um framkvæmd liðskipta-, bak-, kviðsjár-, og brjóstaminnkunaraðgerða með greiðsluþátttöku sjúkratrygginga til næstu þriggja ára.
Þjónustuskrifstofa Vinnumálastofnunar í Reykjanesbæ verður lokuð frá og með mánudeginum 18. ágúst vegna flutninga.
Vinnumálastofnun hefur gefið út skýrslu um vinnumarkaðinn á fyrri helmingi ársins 2025.
Vinnueftirlitið stendur, fimmtudaginn 28. ágúst næstkomandi, fyrir morgunfundi þar sem kynntar verða niðurstöður rannsóknarverkefna sem hlutu styrk úr Vinnuverndarsjóði vorið 2024. Einnig mun félags- og húsnæðismálaráðherra veita styrki til þeirra verkefna sem hlutu úthlutun árið 2025.
Skráð atvinnuleysi í júlí var 3,4% og var óbreytt frá síðasta mánuði.
Blaðlýs virðast vera helsti skaðvaldurinn á plöntum í Surtsey í ár en beit þeirra var þó ekki mikil, samkvæmt rannsóknum Brynju Hrafnkelsdóttur, skordýrafræðings hjá Landi og skógi, sem vann meðal annars að skrásetningu blaðlúsa og annarra beitarskordýra í eynni nú í júlímánuði.