Nýrri skýrslu um markaðsaðstæður og fjármögnun náttúrutengdra lausna er ætlað að efla umræðu og stefnumótun um hvernig megi virkja einkaframtakið til að hraða loftslagsaðgerðum, sérstaklega á sviði skógræktar, endurheimtar votlendis og skyldra verkefna. Með samstilltu átaki hins opinbera og einkaaðila er hægt að stórauka náttúrutengdar loftslagsaðgerðir sem styðja við landsmarkmið Íslands undir Parísarsamningnum sem og loftslagsvegferð íslenskra fyrirtækja, að mati skýrsluhöfunda.