10000 leitarniðurstöður
Árið 2026 mun Samgöngustofa halda námskeið fyrir prófdómara flugskírteina á fjölstjórnarvélar (TRE/SFE/CRE) þann 12. mars og 14. október. Námskeið fyrir einstjórnarvélar (FE) verður haldið þann 5. mars.
Forstjóri Landspítala hefur skipað vinnuhóp til að skila tillögum að verklagi við ákvarðanatöku um afnám þagnarskyldu vegna brýnnar nauðsynjar sem hægt verði að birta í gæðahandbók spítalans.
Inngangur norðan megin við sjúkahúsið í Vestmannaeyjum hefur verið opnaður á ný eftir lokun sem stóð yfir í nokkra mánuði vegna framkvæmda. Á þeim tíma var planið við innganginn malbikað og skipt um lagnir.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði sölu og dreifingu áfengis í húsnæði í Kópavogi á mánudag. Þrír voru handteknir á vettvangi vegna málsins og færðir á lögreglustöð, en síðan sleppt að loknum yfirheyrslum.
Svefnmiðstöðin náði miklum framförum á síðasta ári við að vinna niður biðlista eftir meðferð við kæfisvefni. Í byrjun árs biðu 500 einstaklingar eftir meðferð og biðtímar voru mun lengri en áætlað var. Eftir markvissar aðgerðir er biðtíminn nú innan þjónustumarkmiða og hefur farið úr sjö mánuðum niður í einn.
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur tekið í notkun nýja heimasíðu og nýja vefgátt. Hér má finna nánari upplýsingar um hvaða vefgátt á að nota eftir því hvenær mál var stofnað.