Fara beint í efnið

7. janúar 2026

Kærunefndin tekur í notkun nýja heimasíðu og vefgátt

Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur tekið í notkun nýja heimasíðu og nýja vefgátt. Hér má finna nánari upplýsingar um hvaða vefgátt á að nota eftir því hvenær mál var stofnað.

Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur tekið í notkun nýja heimasíðu og nýja vefgátt.

Mál sem voru stofnuð fyrir 7. janúar 2025 halda áfram meðferð í eldri vefgátt kærunefndarinnar. Beinn hlekkur á eldri vefgátt er aðgengilegur á forsíðu heimasíðunnar.

Meðferð mála sem eru stofnuð eftir 7. janúar, sem og nýjar kvartanir sem berast kærunefndinni, fer fram í nýju vefgáttinni. Á forsíðu heimasíðunnar eru hlekkir fyrir innskráningu á nýju vefgáttina og beinn hlekkur á kvörtunareyðublað fyrir nýjar kvartanir.

Kærunefndin vonast til að yfirfærslan gangi vel og að sem fæstir hnökrar komi upp. Ef upp koma vandamál eða spurningar er bent á að hafa samband við kærunefndina í tölvupósti á kvth@kvth.is.

Heimasíðan er enn í vinnslu og óskar kærunefndin eftir biðlund notenda. Ábendingar um það sem betur má fara eru jafnframt vel þegnar.