Hinn 30. júní 2020
sendi Persónuvernd bréf til Tryggingastofnunar ríkisins (TR) með almennum
leiðbeiningum um notkun upplýsinga um IP-tölur einstaklinga við eftirlit.
Byggðu leiðbeiningarnar á upplýsingum og gögnum sem TR hafði látið Persónuvernd
í té, þ. á m. verklagsreglum eftirlits. Í bréfi Persónuverndar kemur meðal
annars fram að upplýsingar um IP-tölur verði, einar og sér, ekki taldar
áreiðanlegar um búsetu einstaklinga. Jafnframt kemur fram að verklagsreglur TR
bendi ekki til þess að ákvarðanir um bótarétt séu byggðar á slíkum upplýsingum
einum og sér, heldur geti þær orðið til þess að frekari rannsókn hefjist. Þá
geti þau rannsóknarúrræði sem TR beitir, svo sem beiðni um rannsókn Þjóðskrár
Íslands á lögheimili, þjónað þeim tilgangi að sannreyna áreiðanleika upplýsinga
um IP-tölur.