Vegna eldgossins sem hófst sunnudaginn 14. janúar munu matsgerðir sem unnar hafa verið á fasteignum í Grindavík undanfarið óhjákvæmilega tefjast. Fyrirhugað var að kynna matsgerðir og niðurstöðu tjónamats fyrir lok janúar á þeim eignum sem skoðaðar voru fyrir jól og gefa íbúum færi á að koma að sínum sjónarmiðum. Alls var búið að skoða ríflega 260 húseignir en 115 biðu tjónaskoðunar.