Tuttugu og þrír ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fimmtán þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, fjórir í Kópavogi, þrír í Hafnarfirði og einn í Garðabæ. Þetta voru tuttugu karlar á aldrinum 19-57 ára og þrjár konur, 19, 23 og 55 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.