Árlegt átak Lands og skógar í samvinnu við skógræktarhreyfinguna og fleiri samtök og fyrirtæki hefst formlega á degi íslenskrar náttúru 16. september. Fyrsti viðburðurinn verður á vegum Lionsklúbbsins Sifjar í Reykhúsaskógi Eyjafjarðarsveit klukkan sautján í samvinnu við Skógræktarfélag Eyfirðinga og skógarbændur í Reykhúsum.