10000 leitarniðurstöður
Rafrænar aflýsingar er fyrsta ferlið sem þróað var í verkefninu rafrænar þinglýsingar en aflýsingar gegna því hlutverki að aflýsa réttindum úr þinglýsingabókum.
Nú liggur fyrir að heilsugæsla HSU í Laugarási verður flutt í nýtt húsnæði vorið 2025. Aðdragandi að flutningi heilsugæslunnar verður rakinn hérna í þessari samantekt.
Sóttvarnalæknir hefur gefið út leiðbeiningar fyrir landsmenn á ferð erlendis meðan heimsfaraldur COVID-19 gengur yfir. Fjallað er um notkun hlífðargríma, sýkingavarnir sem hver og einn þarf að viðhafa, ekki hvað síst erlendis og hvað skal gera við heimkomu. Mjög mikilvægt er að ferðast ekki ef einkenni um smit eru til staðar.
Embætti landlæknis og Tannlæknafélag Íslands standa fyrir tannverndarviku 1.-5. febrúar 2021 með skilaboðum til landsmanna um að huga vel að heilsunni. Áhersla verður á súra orkudrykki sem innihalda koffín en öll þurfum við að vera betur upplýst um skaðleg áhrif orkudrykkja bæði á almenna heilsu og tannheilsu ungmenna.
Undanfarna daga hafa komið fram gögn frá Norðurlöndum um aukna tíðni hjartabólgu og gollurshússbólgu eftir bólusetningu með Moderna bóluefni umfram bólusetningu með bóluefni Pfizer/BioNTech (Comirnaty).
Frá og með 3. febrúar 2022 er felld niður línuívilnun í ýsu og löngu sem ákveðin er í reglugerð nr. 921/2021 um línuívilnun.
Morgunverðarfundur Náum áttum, "Notkun nikótíns í nútímasamfélagi" verður haldinn í fyrramálið, á netinu kl. 08:15-10:00. Fjallað verður um nikótín, rafsígarettur, tóbak og löggjöfina varðandi það.
Að gefnu tilefni vegna fullyrðinga sem nýlega komu fram í fjölmiðli um meint mistök embættis landlæknis varðandi gögn um COVID-19 og smithlutfall bólusettra og óbólusettra einstaklinga, eða að gögnum um það hafi verið breytt, vill sóttvarnalæknir árétta að slíkar ásakanir eru með öllu tilhæfulausar.
Í dag mun hópur viðskiptavina TR fá senda þjónustukönnun í tölvupósti þar sem verið er að kanna upplifun þeirra af þjónustu TR.
Frestur til að senda inn tilboð vegna reksturs heilbrigðisstofnunar á Vífilsstöðum hefur verið framlengdur til og með 31. júlí 2022.