10000 leitarniðurstöður
Embætti landlæknis óskar eftir að ráða sérfræðilækni á svið eftirlits og gæða heilbrigðisþjónustu.
Fundur ríkissaksóknara Norðurlandanna var að þessu sinni haldinn í Visby á Gotlandi dagana 10.-12. júní.
Embætti landlæknis hefur birt skýrslu um hlutaúttekt sem gerð var á Leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands (LKÍ). Tilefni úttektarinnar var tilkynning LKÍ um alvarlegt atvik þar sem leghálssýni hafði verið ranglega greint eðlilegt og að LKÍ taldi í kjölfarið þörf fyrir að endurskoða fjölda valinna einskoðaðra leghálssýna frá árunum 2017-2019.
Stafrænt Ísland var fengið í pallborðsumræður og flutti erindi um árangur Íslands á tveggja daga alþjóðlegri ráðstefnu stafrænna leiðtoga í Ottowa Kanada.
Þann 18. maí fólu landlæknir, sóttvarnalæknir og forstjóri Lyfjastofnunar tveimur óháðum sérfræðingum að rannsaka andlát og myndun blóðtappa sem tilkynnt hafa verið til Lyfjastofnunar í kjölfar bólusetninga gegn COVID-19 sjúkdómi. Alls voru 10 tilkynningar teknar til skoðunar.
Matarborið smit hefur verið staðfest á leikskólanum Mánagarði í Reykjavík. Smitvaldur er E. coli baktería af tegund sem kallast STEC og af sermisgerðinni O145.
Alþjóðlegur dagur alnæmis er haldinn árlega þann 1. desember. Tilgangur dagsins er að vekja athygli með fræðslu, minnast þeirra sem látist hafa vegna alnæmis (AIDS) og fagna sigrum sem unnist hafa í baráttunni við alnæmi.
Skiptimarkaðurinn opnar í dag, mánudaginn 22. janúar 2024 kl. 14:00. Frestur til að skila tilboðum er til kl. 14:00 mánudaginn 29. janúar 2024.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, hefur vakið athygli á mismun á heilsu og þörfum kynja (e. gender sensitive health). Þannig er nú viðurkennt að heilsufarsvandamál karla og kvenna eru að hluta mismunandi og að sértæk nálgun geti bætt heilbrigði.
Í byrjun árs fékk HSN á Dalvík formlega afhent þráðlaust sónartæki að gjöf frá kvenfélögunum Hvöt Árskógsströnd og Tilraun í Svarfaðardal.