Mislingasmit kom upp hér á landi nýverið. Ef þú telur að þú eða börnin þín séu með
mislinga getur þú hringt í síma 1700 eða haft samband í gegnum netspjall Heilsuveru og
við ráðleggjum þér með næstu skref.
Athugið að ef grunur er um smit á ekki að koma á heilsugæslustöð eða sjúkrahús vegna hættu á hópsmiti.
Heilsugæslan hvetur foreldra til að tryggja að börn séu bólusett við mislingum ef einhverjar spurningar vakna hringið þá í 1700 eða þína heilsugæslustöð.