4481 leitarniðurstöður
Í vikunni stóð Fjársýslan fyrir viðburði um reynslumiðlun af opinberum nýsköpunarverkefnum. Á viðburðinum deildu verðlaunahafar Nýsköpunarverðlauna hins opinbera reynslu sinni af ferli umbótaverkefna allt frá hugmyndum í framkvæmd og eftirfylgni.
Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Suðurlandsvegi, Lindarbraut, Hafnarfjarðarvegi, Grensásvegi, Miklubraut og Arnarnesvegi.
Minningarsjóður Guðnýjar Júlíönu Ólafsdóttur Stefáns, Gullusjóður, var stofnaður árið 2012 til stuðnings starfsemi HSN í Fjallabyggð. Starfsfólk HSN í Fjallabyggð hélt þakkarkaffi þar sem aðstandendum sjóðsins voru færðar innilegar þakkir fyrir ómetanlegan stuðning síðustu ár.
Fyrirtækið Abler var valið Vaxtarsproti ársins sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis en velta fyrirtækisins jókst um 109% milli ára. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, afhenti Vaxtarsprotann 2024 í Flórunni í Grasagarðinum í Laugardal þann 3. september.
Vorið 2013 var í fyrsta skipti kallað eftir jafnréttisáætlunum frá grunnskólum og hefur það síðan verið gert reglulega. Jafnréttisstofa mun nú hætta þeirri innköllun en leik- og grunnskólar hafa samt enn ríkar lagaskyldur til að tryggja jafnrétti í skólastarfi og er mikilvægt að þeim skyldum sé sinnt.