Persónuvernd hefur sent Tryggingastofnun ríkisins erindi
þar sem stofnuninni er leiðbeint um að taka til skoðunar núverandi verklag
sitt, sem felur í sér skoðun á IP-tölum einstaklinga sem þiggja lífeyri frá
stofnuninni í þeim tilgangi að fylgjast með staðsetningu þeirra. Í erindi
Persónuverndar er meðal annars vísað til nýlegs <a href="/urlausnir/notkun-vinnumalastofnunar-a-upplysingum-um-ip-tolur">úrskurðar stofnunarinnar í máli nr. 2018/1718</a>, þar
sem komist var að þeirri niðurstöðu að vinnsla upplýsinga um IP-tölur, í þeim
tilgangi að upplýsa um staðsetningu einstaklinga, uppfyllti ekki kröfur
persónuverndarlaga um áreiðanleika persónuupplýsinga.