Föstudaginn 20. mars sl. barst Persónuvernd til
umsagnar frá Vísindasiðanefnd umsókn frá Íslenskri erfðagreiningu um
heimild til að gera rannsókn á faraldsfræði SARS-CoV-2-veirunnar og áhrifum
erfða og undirliggjandi sjúkdóma á COVID-19-sjúkdóminn sem hún veldur. Umsögn
var send frá Persónuvernd til nefndarinnar í gær, mánudaginn 23. mars. Kemur
þar fram, með vísan til þeirra almennu skilyrða sem gilda um vísindarannsóknir
á heilbrigðissviði, að ekki séu gerðar athugasemdir við að nefndin taki umsókn
ÍE til efnislegrar afgreiðslu. Umsögn Persónuverndar má sjá hér að neðan.