Embætti landlæknis hefur birt úttekt sína á hópsmiti COVID-19 á Landakoti í október 2020. Atvikið er eitt það alvarlegasta sem komið hefur upp í heilbrigðisþjónustu hér á landi; smit komu upp hjá 99 starfsmönnum og sjúklingum spítalans, 13 sjúklingar á Landakoti létust.