Í dag voru nýir lýðheilsuvísar eftir heilbrigðisumdæmum kynntir á Hótel Selfossi, Árborg. Er þetta í fimmta sinn sem lýðheilsuvísar embættis landlæknis eru gefnir út. Við val á lýðheilsuvísum er sjónum einkum beint að þeim þáttum sem hafa áhrif á heilsu og líðan sem fela í sér tækifæri til heilsueflingar og forvarna. Þá er leitast við að velja þá þætti í sjúkdómabyrði sem mikilvægt er að heilbrigðisþjónusta hvers umdæmis geri sér grein fyrir og bregðist við.