Blaðamaður á vegum bandarísku vefsíðunnar <a href="https://www.genomeweb.com">GenomeWeb</a> tók nýverið viðtal við Helgu Þórisdóttur, forstjóra Persónuverndar, en GenomeWeb er fréttavefur þar sem áhersla er lögð á vísindi og erfðafræði. Viðtalið er birt í frétt sem fjallar um vinnslu Íslenskrar erfðagreiningar ehf. á upplýsingum um þá sem bera BRCA2-erfðabreytuna, en hún hefur í för með sér aukna hættu á krabbameini.