Fara beint í efnið

Verklag um fylgdarlaus börn sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd

Þetta verklag er nýtt og enn í vinnslu.

Í þessari handbók er að finna sameiginlegt verklag Útlendingastofnunar, Vinnumálastofnunar, Barna- og fjölskyldustofu, Lögreglunnar á Suðurnesjum, Ríkislögreglustjóra og barnverndarþjónustna.

    Mismunandi málsmeðferðir Útlendingastofnunar

    Mál fylgdarlausra barna sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd eru ólík eftir þeirri málsmeðferð sem fram fer hjá Útlendingastofnun. Þessum viðauka er ætlað að skýra betur farveg mála fylgdarlausra barna eftir tegund máls.

    Skýring á málsmeðferð: Þegar aðili sem sótt hefur um alþjóðlega vernd leggur fram frekari gögn í máli sínu eða sækir um alþjóðlega vernd að nýju, eftir að hann hefur fengið niðurstöðu í máli sínu.

    • Meginreglan er að endurteknum umsóknum skuli vísað frá.

    • Þó skal taka endurtekna umsókn til meðferðar að nýju ef aðili er staddur hér á landi og nýjar upplýsingar liggja fyrir í máli hans sem leiða til þess að sýnilega auknar líkur eru á því að fallist verði á fyrri umsókn hans.

    • Aðili sem sækir að nýju um alþjóðlega vernd er ekki umsækjandi eins og í öðrum málsmeðferðum, heldur málsaðili. Af þeim sökum fær hann ekki þau réttindi sem fylgja því að vera umsækjandi um alþjóðlega vernd eins og t.a.m. talsmannaþjónustu.

    • Þegar aðili sækir um alþjóðlega vernd á ný hjá lögreglunni útbýr lögreglan nýja hælisbeiðni, þar sem fram kemur að aðilinn hafi áður sætt málsmeðferð hjá Útlendingastofnun vegna umsóknar um alþjóðlega vernd.

    • Aðili eru spurður hver ástæðan sé fyrir endurkomu til landsins og hvort að eitthvað hafi breyst frá fyrri málsmeðferð. Einnig er aðili spurður hvenær hann fór síðast frá Íslandi og hvar hann hafi verið síðan.

    • Útlendingastofnun metur gögn og ef ekkert hefur breyst frá fyrri málsmeðferð eða hinar nýju ástæður aðila eru þannig að ekki séu sýnilega auknar líkur á því að fallist verði á fyrri umsókn, er málinu vísað frá.

    • Málsaðili er boðaður til Útlendingastofnunar, ákvörðun um frávísun er birt og næstu skref útskýrð. Túlkur er viðstaddur.

    • Ef aðili er staddur hér á landi og nýjar upplýsingar liggja fyrir í máli hans sem leiða til þess að sýnilega auknar líkur eru á því að fallist verði á fyrri umsókn hans, er mál hans tekið til hefðbundinnar meðferðar hjá Útlendingastofnun.

    • Verði endurtekin umsókn tekin til meðferðar, skal málsmeðferð hennar fyrst og fremst taka mið af þeim nýju upplýsingum eða gögnum sem liggja henni til grundvallar.