Fara beint í efnið

Verklag um fylgdarlaus börn sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd

Þetta verklag er nýtt og enn í vinnslu.

Í þessari handbók er að finna sameiginlegt verklag Útlendingastofnunar, Vinnumálastofnunar, Barna- og fjölskyldustofu, Lögreglunnar á Suðurnesjum, Ríkislögreglustjóra og barnverndarþjónustna.

    Mismunandi málsmeðferðir Útlendingastofnunar

    Mál fylgdarlausra barna sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd eru ólík eftir þeirri málsmeðferð sem fram fer hjá Útlendingastofnun. Þessum viðauka er ætlað að skýra betur farveg mála fylgdarlausra barna eftir tegund máls.

    Skýring á málsmeðferð: Málsmeðferðin byggist á því að það sé annað ríki sem beri ábyrgð á umsækjanda, enda hafi hann fengið veitta vernd í því ríki.

    • Ef umsækjandi um alþjóðlega vernd finnst í Eurodac gagnagrunni eða ef umsækjandi er með flóttamannaskilríki þegar hann sækir um alþjóðlega vernd, fer umsókn hans í svokallaða verndarmeðferð.

    • Í máli fylgdarlauss barns er ávallt metið hverjar einstaklingsbundnar aðstæður þess eru. Í hverju verndarmáli fer fram sjálfstæð rannsókn á því hverjar aðstæður barns eru í viðtökuríki. Sérstaklega er kannað hvort að barn eigi þar foreldra eða aðra forsjáraðila og eftir atvikum hvort þar séu virk barnaverndaryfirvöld.

    • Í verndarmálum er barn spurt út í aðstæður þess í viðtökuríkinu og þá þjónustu sem barn kann að hafa fengið þar í landi.

    • Í verndarmálum hefur löglærður talsmaður sjö daga til þess að skila greinargerð vegna málsins.

    • Ef það er mat Útlendingastofnunar að aðstæður í viðtökuríki séu þess eðlis að barn geti dvalist þar, er barni synjað um efnismeðferð, sbr. a. liður 36. gr. laga um útlendinga og er brottvísað. Ef það er hins vegar mat Útlendingastofnunar að aðstæður í viðtökuríki séu þess eðlis að það sé ekki barni fyrir bestu að fara þangað og aðstæður barns séu ekki tryggðar þar, taka íslensk stjórnvöld ábyrgð á umsókninni og málið hlýtur efnismeðferð hjá stofnuninni.

    • Ákvörðun um synjun á efnismeðferð í verndarmáli sætir sjálfkrafa kæru til kærunefndar útlendingamála.

    • Kæra frestar að jafnaði réttaráhrifum og framkvæmd ákvörðunar, sem þýðir að barnið verður ekki flutt úr landi á meðan kærunefnd útlendingamála fjallar um mál þess.

    • Niðurstöður kærunefndar útlendingamála geta verið af þrennum toga:

      • Í fyrsta lagi getur kærunefnd útlendingamála staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar.

      • Í öðru lagi getur kærunefnd útlendingamála vísað málinu aftur til meðferðar hjá Útlendingastofnun.

      • Í þriðja lagi getur kærunefnd útlendingamála vísað málinu til Útlendingastofnunar og lagt fyrir stofnunina að taka mál barns til efnismeðferðar.

    • Í þeim tilfellum sem umsækjandi vill una ákvörðun Útlendingastofnunar þarf barn eða skipaður talsmaður þess að senda tilkynningu þess efnis á kærunefnd útlendingamála, sem tilkynnir Útlendingastofnun um niðurfellingu máls.

    • Þegar staðfest er að barn fái ekki efnismeðferð á Íslandi útbýr Útlendingastofnun verkbeiðni um flutning til viðtökuríkis.

    • Hvort sem barn unir ákvörðun Útlendingastofnunar eða hlýtur synjun um efnismeðferð á Íslandi er það heimferða- og fylgdadeild ríkislögreglustjóra (HOF) sem flytur barn til þess ríkis sem ber ábyrgð á umsókn þess.

    • Þegar flytja á barn til viðtökuríkis í verndarmáli þarf aðkomu barnaverndarþjónustu á Íslandi og Barna- og fjölskyldustofu í aðdraganda flutningsins.

    • Barnaverndarþjónusta metur hvort þörf sé á að starfsmaður þjónustunnar taki þátt í fylgd barns til viðtökulands.