Fara beint í efnið

Verklag um fylgdarlaus börn sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd

Í þessari handbók er að finna sameiginlegt verklag Útlendingastofnunar, Vinnumálastofnunar, Barna- og fjölskyldustofu, Lögreglunnar á Suðurnesjum, Ríkislögreglustjóra og barnverndarþjónustna.

Síðast uppfært 22. júní 2026: Breytingasaga

    Inngangur

    Sameiginlegt verklag Útlendingastofnunar, Vinnumálastofnunar, Barna- og fjölskyldustofu, Lögreglunnar á Suðurnesjum, Ríkislögreglustjóra og barnverndarþjónustna. Verklagið tekur mið af ákvæðum laga um útlendinga nr. 80/2016 (hér eftir lög um útlendinga), reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, barnaverndarlaga nr. 80/2002 (hér eftir barnaverndarlög), reglugerð um málsmeðferð fyrir barnaverndarnefnd nr. 56/2004 og lög um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins nr. 19/2013 (Barnasáttmálinn). Verklagið er aðgerð í framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar 2023-2027 og nær til fylgdarlausra barna sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd.

    Fylgdarlaust barn samkvæmt lögum um útlendinga, sbr. 12. tl. 3. gr: Barn sem kemur fylgdarlaust inn á yfirráðasvæði ríkis, svo lengi sem það hefur ekki í reynd verið tekið í umsjá foreldra eða fullorðins einstaklings sem ber ábyrgð á því samkvæmt lögræðislögum. Þetta á einnig við ef barnið er skilið eftir án fylgdar eftir að það kemur á yfirráðasvæði ríkis.