Fara beint í efnið

Verklag um fylgdarlaus börn - sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd

Sameiginlegt verklag Útlendingastofnunar, Vinnumálastofnunar, Barna- og fjölskyldustofu, Lögreglunnar á Suðurnesjum, Ríkislögreglustjóra og barnverndarþjónustna. Verklagið tekur mið af ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 (hér eftir lög um útlendinga), reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 og barnaverndarlaga nr. 80/2002 (hér eftir barnaverndarlög), reglugerð um málsmeðferð fyrir barnaverndarnefnd nr. 56/2004 og lög nr. 19/2013 um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins (Barnasáttmálinn). Verklagið er aðgerð í framkvæmdaráætlun á sviði barnaverndar 2023-2027 og nær til fylgdarlausra barna sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd.

    Inngangur

    Fylgdarlaust barn samkvæmt lögum um útlendinga, sbr.12.tl.3.gr: Barn sem kemur fylgdarlaust inn á yfirráðasvæði ríkis, svo lengi sem það hefur ekki í reynd verið tekið í umsjá foreldra eða fullorðins einstaklings sem ber ábyrgð á því samkvæmt lögræðislögum. Þetta á einnig við ef barnið er skilið eftir án fylgdar eftir að það kemur á yfirráðasvæði ríkis.

    Í 3. gr. barnasáttmálans er að finna regluna um bestu hagsmuni barns sem felur í sér að hagsmunir barns skulu ávallt ganga fyrir við allar ákvarðanir sem varða það. Við alla málsmeðferð hjá stjórnvöldum ber að hafa regluna í huga en það á jafnt við um börn í fylgd með fullorðnum eða fylgdarlaus. Þá skal gætt að því að þeir staðir sem ætlaðir eru börnum séu barnvænir og að börn fái upplýsingar á barnvænan hátt um mál sitt. Hvað varðar málefni fylgdarlausra barna sérstaklega, skal hver og ein stofnun sem kemur að móttöku fylgdarlausra barna hafa skýrt verklag innan sinnar starfsemi sem mælir fyrir um það hvernig gætt er að hagsmunum barnsins við alla ákvarðanatöku við meðferð máls.

    Hlekkur – á leiðbeiningar um framkvæmd hagsmunamats heimasíða stjórnarráðsins