Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Ritunarramminn – handbók um notkun

Hér má finna PDF útgáfu af handbókinni.


Ritunarrammann má nálgast á Læsisvefnum.

    Framvindurammar og þrep

    Mikilvægt er að hafa góða yfirsýn og skilning á inntaki efnisþáttanna sem liggja til grundvallar Ritunarrammanum. Til að auðvelda kennurum að átta sig á nauðsynlegum stíganda í hæfni nemenda og hvað hver efnisþáttur felur í sér voru svokallaðir framvindurammar útbúnir fyrir hvern þátt rammans. Framvindurammar nýtast til dæmis vel við skipulagningu ritunarkennslu en þeir eru ekki matstækið sjálft heldur þrepin sem fjallað er um í næsta kafla.

    Dæmi um framvinduramma

    Ritunarrammanum er skipt í sex þrep sem ná yfir alla árganga grunnskólans. Á myndinni Dæmi um framvinduramma má sjá að fyrsta þrep nær yfir 1. og 2. bekk og á þrepum tvö og þrjú er einnig gert ráð fyrir skörun. Ástæðan fyrir sköruninni í fyrstu þremur þrepunum er sú að nemendur eru misfljótir af stað í læsisnámi sínu. Þessi getumunur jafnast svo út þegar nemendur hafa náð tökum á undirstöðuatriðunum og við taka atriði sem eru flóknari og nemendur eru lengur að ná tökum á. Það skýrir hvers vegna efri þrepin ná yfir tvo árganga en skarast ekki.

    Á myndinni má einnig má sjá hvernig efnisþátturinn „uppbygging texta“ er brotinn niður í undirþætti sem síðan eru útfærðir í matsviðmið. Matsviðmiðin geta ýmist náð yfir eitt þrep eða fleiri en það ræðst af því hversu flókið viðfangsefnið er talið og hvenær gera má ráð fyrir að nemendur séu færir um að ná tiltekinni færni eða hæfni.

    Matsviðmið Ritunarrammans eru nokkuð sértækari og ítarlegri en hæfniviðmið aðalnámskrár. Matsviðmiðin má einnig nota sem námsmarkmið við gerð kennsluáætlana og skólanámskrár. Þannig brúa þau bilið á milli nokkuð almennra ákvæða aðalnámskrár og hagnýtrar framkvæmdar ritunarkennslu. Orðalag viðmiðanna í framvindurömmunum endurspeglar færni eða hæfni sem hefur verið að fullu náð.

    Þrep Ritunarrammans eru notuð fyrir mat á ritun. Þrepin eru sex fyrir hverja textategund. Gert er ráð fyrir því að allir nemendur komist á 6. þrep á grunnskólagöngu sinni. Í þrepum rammans eru efnisþættirnir brotnir niður á aldursbundin þrep sem gefa til kynna þá hæfni sem nemendur á ákveðnu aldursbili þurfa að tileinka sér. Þessi þrep eru ætluð til leiðsagnar í kennslu og námi og eiga að varða leið ritunarnáms nemenda allt til loka grunnskólagöngunnar.

    Þrepin eru sett upp sem greinandi þriggja stiga matskvarðar. Í greinandi matskvörðum er nákvæm lýsing á gæðum viðfangsefnisins. Greinandi matskvarðar auðvelda nemendum að skilja hvað er mikilvægt í náminu, hvað einkennir vel unnið verkefni og gerir þeim kleift að yfirfæra þau einkenni frá einu verkefni til annars. Þannig geta kvarðanir veitt kennurum, nemendum og foreldrum ítarlegar upplýsingar um frammistöðu nemenda, bæði styrk- og veikleika sem og æskileg næstu skref í kennslu.

    Stigin þrjú eru sett upp undir heitunum Þarfnast þjálfunar, Á góðri leið og Viðmiði náð. Mismunandi er milli matsviðmiða hversu lík eða ólík viðmiðin eru við fyrstu sýn og kunna þau jafnvel að virðast eins. Því er gott að horfa vel eftir áherslu- og atviksorðum sem greina á milli matsviðmiðanna eða hvort verið sé að nota og eða eða. Eftirfarandi tafla sýnir notkun áherslu- og ákvæðisorða í viðmiðunum til að greina á milli þrepa og stiga.