Fara beint í efnið

Leiðbeiningar við útfyllingu á útflutningsskýrslu

Þjónustuaðili:

Útflutningsskýrsla er lögboðið skjal við sérhvern útflutning í atvinnuskyni. Hægt er að skila henni rafrænt eða á pappír, eyðublað E-2.1

Ef þú ert með heimild til rafrænnar tollafgreiðslu sendir þú skýrsluna rafrænt beint til Skattsins. Ef ekki, skilarðu útfylltu E-2.1 eyðublaði við tollstöð.

Reitir sem ekki koma fram í leiðbeiningum eru ekki notaðir við útflutning.

    Skýrslugerð, sendandi og viðtakandi - reitir 1 til 14

    Reiti 1 er skipt í þrjá hluta. Allir þrír þurfa að vera rétt fyllti út.

    1. hluti – Markaðssvæði

    Lykill

    Skýring

    EU

    Útflutningur til EFTA-, ESB- eða EES-lands

    EX

    Útflutningur til þriðja lands (utan EES)

    2. hluti – Tegund tollafgreiðslu

    Lykill

    Skýring

    UA

    Almennur útflutningur

    UE

    Endurútflutningur

    U1

    Bráðabirgðaafgreiðsla

    U3

    SMT – bráðabirgðaafgreiðsla / fullnaðartollafgreiðsla

    U4

    Bráðabirgðaafgreiðsla / fullnaðartollafgreiðsla á pappír

    US

    SMT-tollafgreiðsla

    UT

    Almennur útflutningur og umflutningur

    UU

    Endurútflutningur og umflutningur

    U2

    Bráðabirgðaafgreiðsla og umflutningur

    3. hluti

    Aðeins fylltur út ef sendingin fer einnig i gegnum annað land (umflutningur).

    Gerð svæðis: (a2)