Leiðbeiningar við útfyllingu á útflutningsskýrslu
Þjónustuaðili:
Útflutningsskýrsla er lögboðið skjal við sérhvern útflutning í atvinnuskyni. Hægt er að skila henni rafrænt eða á pappír, eyðublað E-2.1
Ef þú ert með heimild til rafrænnar tollafgreiðslu sendir þú skýrsluna rafrænt beint til Skattsins. Ef ekki, skilarðu útfylltu E-2.1 eyðublaði við tollstöð.
Reitir sem ekki koma fram í leiðbeiningum eru ekki notaðir við útflutning.
Raðnúmer eyðublaðasettsins og heildartala blaða.
Dæmi: eitt aðaleyðublað og tvö framhaldsblöð = settu:
1/3 á E-2.1
2/3 á fyrsta E-2.2
3/3 á annað E-2.2.
Þegar skýrslan nær aðeins yfir eitt tollskrárnúmer: hafðu reit 3 auðan og settu 1 í reit 5.
Gerð svæðis: (a..10)