Leiðbeiningar við útfyllingu á útflutningsskýrslu
Þjónustuaðili:
Útflutningsskýrsla er lögboðið skjal við sérhvern útflutning í atvinnuskyni. Hægt er að skila henni rafrænt eða á pappír, eyðublað E-2.1
Ef þú ert með heimild til rafrænnar tollafgreiðslu sendir þú skýrsluna rafrænt beint til Skattsins. Ef ekki, skilarðu útfylltu E-2.1 eyðublaði við tollstöð.
Reitir sem ekki koma fram í leiðbeiningum eru ekki notaðir við útflutning.
Fullt nafn, heimilisfang og símanúmer sendanda eða útflytjanda ásamt kennitölu.
Ef fleiri útflytjendur sameinast um eina sendingu: einn er skráður sem sendandi og ábyrgðaraðili skýrslu.
Gerð svæðis: Kennitala (a10)
E-6 (1 og 3)