Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Hugbúnaðarrammi Fjársýslunnar

Þjónustuaðili:

Reynsla Fjársýslunnar hefur sýnt fram á vöntun á heildstæðum leiðbeiningum fyrir opinbera aðila þegar kemur að fjárfestingu í hugbúnaði. 

Því var brugðið á það ráð að setja saman leiðarvísi fyrir opinbera aðila við kaup á hugbúnaði, með það að markmiði að einfalda ferlið og draga úr áhættu.

Leiðarvísirinn fjallar um mikilvægi þarfagreiningar, markmiðssetningar og varna gegn birgjalæsingu, ásamt því að útlista tæknilegar og lagalegar kröfur sem ber að hafa í huga við val á mismunandi tegundum hugbúnaðar, þar á meðal staðlaðar, sérlausnir og Power Platform.

Hann veitir einnig innsýn í mótun útboðsgagna, greiðslufyrirkomulags og krafna er varða þróun, prófanir og skil hugbúnaðar.

Byggt er á lærdómi Fjársýslunnar af fyrri útboðum, gögnum frá Stafrænu Íslandi og Fjármálaráðuneytinu, gögnum frá Norskum, Breskum og Dönskum systurstofnunum Ríkiskaupa ásamt reynslu höfundar af hugbúnaðarþróun.

    1. Upphaf verkefnis

    Í upphafi þarf að afla gagna til að auðveldara verði að finna lausn á hugsanlegri áskorun. Vert er að hafa í huga að setja markmið og lykilbreytur fram, huga að samningsstjórnun, gera áhættumat, drög að hugsanlegri tímaáætlun áður en farið er í eigindlega þarfagreiningu.

    Gott er að hafa eftirfarandi spurningar í huga:

    • Hvaða þarfir uppfylla innkaupin/verkefnið

    • Er hægt að breyta ferlum innanhúss og sleppa því kaupum?

    • Hver getur unnið verkið?

    • Hver er afurð verkefnisins og afmörkun?

    • Hverjar eru tímaskorður og skipulag verksins?

    • Hver er fjárhagsrammi verksins?

    • Hvaða ytri skilyrðum er verkið háð?

    Markmiðasetning og lykil breytur

    Fyrir opinbera aðila er mikilvægt að skilgreina markmið (Goals) og mælanlegar lykil breytur (Key Performance Indicators, KPIs) til að hjálpa við að móta hver þörfin er og tryggja skilvirkni ásamt árangur verkefnisins.

    Markmið (Goals) eru yfirmarkmið sem setja stefnuna fyrir verkefnið. Þau ættu að vera skýr, mælanleg og raunhæf.

    Mælanlegar lykil breytur (KPIs) eru mælieiningar sem notaðar eru til að meta framvindu og árangur í átt að markmiðum.

    Hægt er að fylgja eftirfarandi skrefum til þess að setja fram bæði markmið og lykil breytur.

    1. Byrja á því að kanna núverandi ástand og stöðu hjá opinbera aðilanum með því að:

      1. Safna upplýsingum um núverandi aðferðir, hugbúnað, kerfi og þarfir.

      2. Skoða skýringar og markmið opinberra aðila, leitaðu að áskorunum eða vandamálum sem þarf að leysa.

    2. Skilgreindu markmiðið svo opinberi aðilinn viti hverju eigi að ná fram. Settu skýr markmið sem gilda fyrir verkefnið.

      1. Markmiðin þurfa að vera mælanleg, hæfilega raunhæf og skýr, þannig að þau séu einföld og skiljanleg fyrir öllum. Dæmi um markmið gætu verið að bæta þjónustu, auka árangur eða spara kostnað.

    3. Setja fram og mæla lykilmælikvarða sem mæla hvað best hvernig markmiðunu er náð.

      1. Mælingar þurfa að vera einfaldar og skýrar. Dæmi um KPIs gætu verið fjöldi viðskiptavina sem hafa nýtt þjónustuna, hversu hratt svarar viðmót er, eða hversu margar áskoranir hafa verið leystar á skilvirkan hátt.

    4. Skoða framgang verkefnis og vakta lykilmælikvarðana.

      1. Er markmiðum náð eða þarf að endurskoða og þá breyta verkefninu eða aðferðunum?

    5. Lýsa árangrinum.

      1. Leggja fram upplýsingar um árangur verkefnis á skýran og einfaldan hátt til hagsmunaaðila.