Fara beint í efnið

Greiðsluþátttaka vegna talþjálfunar

Greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga fer eftir gildandi reglugerð um þjálfun sem sjúkratryggingar taka til sem gefin er út af velferðarráðuneyti.

Sjúkratryggingar Íslands greiða fyrir talþjálfun samkvæmt greiðsluþátttökukerfinu

Skilyrði

Forsendur fyrir greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga í talþjálfun er að fyrir liggi

Áður en þjálfun hefst þarf að liggja fyrir beiðni læknis um talþjálfun. Þá beiðni skal afhenda talmeinafræðingi sem sér um að senda beiðnina til Sjúkratrygginga.

Börn með minni frávik

Samkomulag var gert milli Velferðarráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2014 um skiptingu ábyrgðar vegna talmeinþjónustu fyrir börn.

Í samkomulaginu kemur fram að sveitarfélögin sinni börnum með minni frávik vegna talmeina, þ.e. þeim sem ekki uppfylla skilyrði sem gerð eru í rammasamningi Sjúkratrygginga Íslands og talmeinafræðinga vegna málþroska, framburðar og stams.

Fjöldi meðferða

Sé beiðni samþykkt fær hinn sjúkratryggði 15 skipti í talþjálfun á hverju 12 mánaða tímabili. 

Talmeinafræðingur þarf að sækja sérstaklega um heimild til Sjúkratrygginga til meðferða umfram 15 skipti sé þess þörf.

Greining og ráðgjöf

Samkvæmt skilyrðum rammasamnings taka Sjúkratryggingar einnig þátt í

  • einni greiningu á hverju 12 mánaða tímabili

  • ráðgjöf í tvö skipti

Fyrirspurnir vegna talþjálfunar er hægt að senda á netfangið;  thjalfun@sjukra.is.
Einnig er hægt að hafa samband í síma 515 0000 eða 515 0004.

Starfandi talmeinafræðingar

Upplýsingar um starfandi talmeinafræðinga má finna á heimasíðu talmeinafræðinga  www.talmein.is.

Sjúkratryggingar veita ekki styrki til talþjálfunar hjá talmeinafræðingum sem starfa án samnings.

Þjónustuaðili

Sjúkra­trygg­ingar