Fara beint í efnið

Sjúkratryggingar vegna fyrirfram ákveðinnar læknismeðferðar erlendis

Nauðsynleg meðferð sem ekki er í boði á Íslandi

Læknisvottorð vegna læknismeðferðar erlendis

Sérfræðihópur metur hvort skilyrði um læknismeðferð erlendis séu uppfyllt samanber 8.gr. laga um sjúkratryggingar nr. 112/2008. Hópurinn er skipaður 5 sérfræðilæknum og lögfræðingi og er yfirtryggingalæknir formaður nefndarinnar.

Nefndin fundar einu sinni í mánuði. Umsókn ásamt nauðsynlegum upplýsingum þarf að liggja fyrir svo að nefndin geti tekið afstöðu til þess hvort unnt sé að samþykkja hana. Sjá umsókn hér til hægri. Einstaklingar geta sótt sjálfir um en þá þurfa ítarleg læknisfræðileg gögn að fylgja umsókn, sjá að neðan en mælt er með því að meðferðarlæknir fylli út umsókn.

Athugið að alltaf verður að sækja um fyrirfram samþykki til Sjúkratrygginga sem verður að liggja fyrir áður en meðferð fer fram. Ef umsókn er samþykkt er heildarkostnaður læknismeðferðar greiddur að fullu ásamt ferða- og uppihaldskostnaði.

Þegar mál hefur verið samþykkt er haft samband við Icelandair sem sér um bókun flugs og flug er þá greitt af Sjúkratryggingum. Umsókn er dagpeninga vegna uppihaldskostnaðar er hér til hægri, engin gögn þurfa almennt að fylgja umsókn um dagpeninga en óskað verður eftir frekari gögnin ef nauðsyn þykir. 

Eftirtalin skilyrði þurfa að vera uppfyllt til að Sjúkratryggingum sé heimilt að samþykkja greiðslu vegna læknismeðferðar erlendis:

  • að um brýna nauðsyn á læknismeðferð erlendis sé að ræða

  • að ekki sé unnt að veita nauðsynlega hjálp hér á landi

  • að læknismeðferðin sé viðurkennd

Í stað þess að sjúklingur fari í meðferð erlendis geta Sjúkratryggingar ákveðið að sérgreinalæknir sem starfar erlendis veiti sjúklingi meðferð á sjúkrahúsi hér á landi ef öll nauðsynleg skilyrði eru uppfyllt.

Ef umsókn um læknismeðferð erlendis hefur verið samþykkt er bent á eftirfarandi:

  • Meðferðarkostnaður er greiddur.

  • Ferðakostnaður, uppihaldskostnaður og mögulegur fylgdarmannskostnaður er greiddur.


Ef umsókn um læknismeðferð erlendis hefur verið samþykkt er bent á eftirfarandi:

  • Sjúkratryggingar greiða fargjald sjúklings frá Íslandi og til þess staðar sem meðferð er fyrirhuguð og til baka aftur. Einnig er endurgreitt fargjald innanlands samkvæmt sérstökum reglum um ferðakostnað innanlands.

  • Ef sjúklingur er yngri en 18 ára er heimilt að greiða ferðastyrk fyrir báða foreldra eða tvo nánustu aðstandendur eftir því sem við á.

  • Sjúkratryggingar greiða dagpeninga vegna nauðsynlegs uppihaldskostnaðar sjúklings utan sjúkrastofnunar svo og uppihaldskostnaðar fylgdarmanns eða fylgdarmanna. Ef um börn er að ræða greiða Sjúkratryggingar dagpeninga að fullu til annars foreldris en að hálfu til hins. Börn yngri en fjögurra ára fá fjórðung af dagpeningum en þau sem eru á aldrinum fjögurra til ellefu ára fá hálfa dagpeninga.

  • Sjúkratryggingar greiða eingöngu uppihaldsdagpeninga þá daga sem er læknisfræðilega nauðsynlegt að dvelja erlendis, ekki er heimild til að greiða umframdaga eða þegar einstaklingur velur að vera lengur til að fá þjónustu sem hægt er fá á Íslandi. 

  • Heimilt er að taka þátt í kostnaði vegna tæknifrjóvgunar para ef ekki er hægt að veita fullnægjandi meðferð hér á landi. Pör taka þátt í kostnaði við meðferð á sama hátt og ef tæknifrjóvgun hefði farið fram á Íslandi. Greiddir eru fullir dagpeningar fyrir annan makann en hálfir fyrir hinn meðan dvalið er utan sjúkrahúss.

  • Ef valin er meðferð á öðrum og dýrari stað en siglinganefnd hefur samþykkt greiða Sjúkratryggingar eingöngu þann kostnað sem henni hefði borið að greiða fyrir sambærilega þjónustu á ódýrari staðnum.

  • Ef aðstæður eru þannig að heilbrigðisstarfsmaður þarf að fylgja sjúklingi greiða Sjúkratryggingar ferðastyrk til hans.

Á listanum hér fyrir neðan má sjá bæði umsóknarfjölda og greiðslur árin 2007-2017. Greiðslur í samantektinni eru flokkaðar eftir sjúkdómsgreiningum.


Hvernig er hægt að senda til okkar umsóknir og nauðsynleg gögn?

  • Senda umsóknir ásamt gögn með öruggum gagnaskilum í gegnum Réttindagátt - Mínar síður eða Gagnagátt meðferðarlæknis. 

  • Koma með umsókn og gögn í Þjónustuver okkar að Vínlandsleið 16. Hægt er að fá þar aðstoð við útfyllingar á umsóknum.

Þjónustuaðili

Sjúkra­trygg­ingar