Fara beint í efnið

28. janúar 2026

Vinnustofa: Föruneyti barna og foreldranámskeiðið Tengjumst í leik

Á þessari vinnustofu fá skólastjórnendur, tengiliðir sveitarfélaga og aðrir sem hyggjast styðja við leiðbeinendur tækifæri til að kynnast verkefninu Föruneyti barna í heild sinni. Farið verður yfir markmið, skipulag og innleiðingu verkefnisins og hvernig það getur stutt við skóla, sveitarfélög og fjölskyldur í að efla farsæld barna.

Markmið vinnustofunnar:

  • Að kynna grunnhugsun og skipulag verkefnisins Föruneyti barna

  • Að útskýra hvernig innleiðing fer fram í samstarfi við sveitarfélög og skóla

  • Að veita dýpri skilning á foreldranámskeiðinu Tengjumst í leik.

  • Að opna umræðu um næstu skref í innleiðingu og samstarfi.

Fyrir hverja:

  • Skólastjórnendur.

  • Fulltrúa sveitarfélaga.

  • Starfsfólk sem vinnur að farsæld og foreldrastuðningi.

  • Aðra sem vilja fræðast um verkefnið.

Tími:

26. febrúar kl. 10:00-12:00 á Zoom

11. mars kl. 13:00-15:00 á Zoom