Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Föruneyti barna

Föruneyti barna er þróunarverkefni á vegum Mennta- og barnamálaráðuneytisins og Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Markmið verkefnisins er að valdefla foreldra og forsjáraðila og styðja við farsæld barna með námskeiðum og fræðslu innan leik- og grunnskóla. Verkefnið er hluti af því að efla grunnþjónustu fjölskyldna í samræmi við ný farsældarlög og telst til forvarnarverkefna sem er í boði fyrir alla uppalendur.

Verkefnið nýtir menningarnæmt námsefni, Tengjumst í leik (e. Invest in Play), sem byggir á rannsóknum og gagnreyndum aðferðum. Upplifun foreldra og forsjáraðila, bæði hérlendis og erlendis, sýnir að með þátttöku í námskeiðinu hafa þau öðlast aukið sjálfstraust í uppeldishlutverkinu, upplifað minni streitu – bæði persónulega og innan fjölskyldunnar – og hegðunarvandi barna dregist saman. Einnig hefur samskipti og samstarf við leik- eða grunnskóla barna þeirra eflst. Fylgst er með upplifun og reynslu þátttakenda með rannsókn sem Háskóli Íslands leiðir samhliða innleiðingarfasa verkefnisins.

„Tengjumst í leik“ hefur verið þýtt og aðlagað að íslenskum aðstæðum samkvæmt samningi við Invest in Play, og er verkefnið hluti af alþjóðlegu innleiðingar- og rannsóknarsamstarfi.

Invest in Play

Skólaþjónustur, sveitafélög, skólar og frístundaþjónustur geta óskað eftir að hefja innleiðingu á foreldranámskeiðinu, Tengjumst í leik.

Innleiðingarferli nær yfir 1 árs tímabil.

Miðstöð menntunar – og skólaþjónustu veitir starfsfólki faglega handleiðslu og stuðning á innleiðingartímanum.

Verkefnastjóri Föruneyti barna er Elsa Borg Sveinsdóttir

Hafa samband: elsa@midstodmenntunar.is

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280