MEMM - Menntun, móttaka, menning
Efnisyfirlit
MEMM er þróunarverkefni sem miðar að því að styðja við menntun og inngildingu barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn í íslensku skóla- og frístundastarfi . Verkefnið var leitt af Mennta- og barnamálaráðuneyti frá 2024-2026 en hefur nú alfarið flust yfir til Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Lögð er áhersla á starfsþróun fyrir kennara og starfsfólk í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum á landsvísu þróun verkfæra og námsefnis og boðið upp á ráðgjöf og stuðning við málaflokkinn innan sveitarfélaga og skóla. Hægt er að nálgast námsefni, verkfæri, leiðbeinandi móttökuáætlanir, fræðsluefni fyrir foreldra og fleira á Vefsíðu MEMM sem ætluð er kennurum og starfsfólki í skóla- og frístundastarfi.
Hægt er að senda fyrirspurn um þjónustu á netfangið memm@mms.is og senda inn beiðni í gegnum beiðnaformið hér neðst á síðunni.
MEMM byggir á þremur meginþáttum
Menntun: Að tryggja öllum börnum aðgengi og rétt til gæðamenntunar og námstækifæra óháð tungumála- og menningarbakgrunni.
Móttaka: Að koma á samræmdu verklagi um móttöku, menntun og þjónustu á landsvísu í leik-, grunn- og framhaldsskólum sem og í frístundastarfi.
Menning: Að stuðla að fjölmenningarlegu og inngildandi skólaumhverfi þar sem virðing, jafnræði og þátttaka eru í forgrunni.
Starfsþróun, fræðsla, ráðgjöf og stuðningur
Starfsþróun, fræðsla, ráðgjöf og stuðningur til sveitarfélaga og skóla sem hægt er að panta í gegnum beiðnakerfið hér fyrir neðan:
Boðið er upp á eftirfarandi:
Foreldrafræðsla á mismunandi tungumálum um íslenskt skólakerfi (arabísku, úkraínsku, spænsku, pólsku og ensku)
Brú milli landa: fyrir starfsfólk skóla um menningu í arabísku, úkraínsku, pólsku, spænsku, kúrdísku og filippísku með áherslu á skólakerfið í þessum löndum
Fjölmenning og inngilding
Fræðsla um fordóma og hatursorðræðu
Stikum af stað: stöðumat fyrir nýkomna nemendur
Íslenska sem annað mál í grunnskólum: kennsluaðferðir og efnisöflun
Íslenska sem annað mál: námsefni
Málstefnuvinna
Hæfnirammar fyrir fjöltyngd grunnskólabörn
Kynning á verkefnum líkt og Sammála og Samræðufélagar
Hæfnirammar fyrir fjöltyngd leikskólabörn
Mál og læsi í leikskólum með áherslu á fjöltyngi
Menningarmót og fjölbreytt tungumál í grunnskólum
Menningarmót og fjölbreytt tungumál í leikskólum
Menningarmót og fjölbreytt tungumál í framhaldsskólum
Beiðni til MEMM
Hér má sækja um fræðslu og ráðgjöf sem lítur að menntun, móttöku og menningu barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn í leik- grunn- og framhaldsskólum. Þau sem geta sótt um eru: sveitarfélög/ skólaþjónustur, skólastjórnendur leik-, grunn og framhaldsskóla sem og deildarstjórar/áfangastjórar í grunn- og framhaldsskóla.
Óskað er eftir