Fara beint í efnið

23. júní 2026

Reglugerð um fjarheilbrigðisþjónustu í Samráðsgátt

Drög að nýrri reglugerð um fjarheilbrigðisþjónustu hafa verið birt í Samráðsgátt.

Drög að nýrri reglugerð um fjarheilbrigðisþjónustu hafa verið birt í Samráðsgátt.

Reglugerðin er unnin af Stafrænni heilsu í samvinnu við embætti landlæknis og markar mikilvægt skref í þróun öruggrar og samræmdrar fjarheilbrigðisþjónustu á Íslandi.

Fjarheilbrigðisþjónusta er orðin fastur hluti af íslensku heilbrigðiskerfi og fer ört vaxandi. Núgildandi umgjörð byggir á fyrirmælum landlæknis frá árinu 2019 sem endurspegla ekki lengur það tækni- og öryggisumhverfi sem þjónustan starfar í. Nýju reglugerðinni er ætlað að leysa þau fyrirmæli af hólmi og tryggja að öryggi, persónuvernd og gæði haldist í hendur við tækniþróun.

Reglugerðin byggir á áhættumiðaðri og tæknilega hlutlausri nálgun. Vettvangar fjarheilbrigðisþjónustu verða flokkaðir í þrjú áhættuþrep, lága, miðlungs og háa áhættu, og kröfur til þeirra taka mið af því þrepi. Þannig er gætt að öryggi sjúklinga án þess að íþyngja um of nýsköpun og þróun á sviðinu. Áfram verður gert ráð fyrir að embætti landlæknis verði falið að útfæra tæknilegar og skiplagslegar kröfur innan þess ramma reglugerðarinnar.

Reglugerðin hefur áhrif á alla veitendur fjarheilbrigðisþjónustu á Íslandi, hvort sem um er að ræða heilbrigðisstofnanir, heilbrigðisstarfsmenn eða nýsköpunarfyrirtæki á sviði stafrænna heilbrigðislausna. Tilgangurinn er skýr, að fólk geti treyst því að sú heilbrigðisþjónusta sem það sækir yfir stafrænar lausnir sé jafn örugg og sú þjónusta sem veitt er augliti til auglitis.

Frestur til að skila umsögnum er fjórar vikur. Við hvetjum alla haghafa til að kynna sér reglugerðina og koma sjónarmiðum sínum á framfæri.