Til umsagnar
23.6.–22.7.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-107/2026
Birt: 23.6.2026
Fjöldi umsagna: 0
Drög að reglugerð
Heilbrigðisráðuneytið
Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa
Heilbrigðisráðuneytið kynnir drög að reglugerð um fjarheilbrigðisþjónustu. Reglugerðinni er ætlað að skapa ramma um kröfur sem gerðar eru til veitingar fjarheilbrigðisþjónustu.
Reglugerðinni er ætlað að skapa ramma um þær tæknilegu- og skipulagslegu kröfur sem gerðar eru til veitingar fjarheilbrigðisþjónustu. Í dag eru slíkar kröfur einna helst í fyrirmælum embættis landlæknis um upplýsingaöryggi við veitingu fjarheilbrigðisþjónustu frá 2019.
Frá því fyrirmælin voru sett árið 2019 hefur notkun fjarheilbrigðisþjónustu aukist verulega og tæknileg þróun verið hröð. Jafnframt hafa orðið breytingar á lagaumhverfi sem kalla á endurskoðun regluverksins. Með reglugerðinni er lögð til áhættumiðuð nálgun þar sem kröfur til fjarheilbrigðislausna ráðast af eðli þjónustunnar og þeirri áhættu sem hún felur í sér fyrir sjúklinga og upplýsingar. Markmiðið er að tryggja öryggi, persónuvernd og gæði þjónustunnar án þess að leggja sömu kröfur á allar lausnir óháð umfangi eða eðli þeirra.
Reglugerðin setur fram meginreglur um öryggi, persónuvernd, auðkenningu notenda, áhættumat, öryggisúttektir og eftirlit. Gert er ráð fyrir að nánari tæknilegar og skipulagslegar kröfur verði útfærðar í fyrirmælum landlæknis þannig að unnt sé að bregðast hraðar við tæknibreytingum og þróun alþjóðlegra viðmiða.
Heilbrigðisráðuneytið fagnar samráði við heilbrigðisstarfsfólk, heilbrigðisstofnanir, rekstraraðila fjarheilbrigðislausna, hagsmunasamtök og aðra áhugasama aðila og mun taka allar ábendingar til skoðunar við áframhaldandi vinnslu málsins.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Stafræn heilsa
gunnar.ingi.agustsson@hrn.is