Fara beint í efnið

24. janúar 2025

Þessi frétt er meira en árs gömul

492 þreyttu íslenskupróf fyrir ríkisborgararétt

Dagana 18. nóvember til 2. desember sl. voru haldin íslenskupróf fyrir ríkisborgararétt. 84% af þeim 492 sem þreyttu prófið stóðust þær grunnkröfur sem gerðar eru til íslenskukunnáttu fyrir íslenskan ríkisborgararétt. Prófin voru haldin í 24 lotum í Reykjavík, á Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði en aldrei hafa fleiri verið skráð í þau. 

Eitt af grunnskilyrðum sem umsækjendur um ríkisborgararétt verða að uppfylla er að hafa staðist þetta próf sem miðast við lokamarkmið í grunnnámi í íslensku fyrir útlendinga (240 stundir), samkvæmt námskrá barna- og menntamálaráðuneytisins. Það samsvarar A1-A2 færnimarkmiði út frá viðmiðunarramma Evrópuráðs fyrir erlend tungumál (Common European Framework of Reference for Languages).   

Sýna þarf fram á að geta: 

  • bjargað sér við daglegar aðstæður í skóla, vinnu og einkalífi. 

  • bjargað sér við óvæntar aðstæður. 

  • tekið þátt í umræðum um kunnugleg málefni. 

  • skilið einfaldar samræður. 

  • lesið stutta texta á einföldu máli. 

  • skrifað stutta texta á einföldu máli. 

  • greint aðalatriði í sjónvarpi, útvarpi og dagblaði. 

Frekari upplýsingar um íslenskupróf fyrir ríkisborgararétt

Næstu íslenskupróf fyrir ríkisborgararétt eru áætluð í maí og nóvember 2025 og verða auglýst á heimasíðu Mímis, www.mimir.is