Handbók vefstjóra: Setja inn mynd, skjöl eða form
Myndir með fréttum - fréttamyndir
Lágréttar myndir (landscape) koma best úr með fréttum á síðunni. Contentful sér um að minnka breidd mynda niður í rétta stærð en reynir að stækka þær ef þær eru of litlar. Það gerir það að verkum að myndir sem eru í rangri stærð geta virkað teygðar og óskýrar.
Við mælum með að:
nota fréttamyndir í góðum gæðum, breidd fréttamynda sé meiri en 1000 pxl.
hlutföll fréttamynda eiga að vera cirka 4:3 (landscape - lárétt),
hægt er að breyta stærðum og stilla myndir af inn í Contentful.
Það er í lagi að setja inn myndir sem eru stórar þar sem kerfið sér um að minnka þær niður - heppilegast er þó að hafa myndirnar í vefupplausn (72dpi) en ekki prentupplausn (300 dpi eða meira).
Vefumsjónakerfið býr til sjálfvirka „thumbnail“ mynd úr fréttamyndinni.
Ef deila á fréttinni á samfélagsmiðlum er mikilvægt að hlaða myndinni líka upp í „og:image“ næst neðst í færslunni.
Efni frá örnámskeiði um myndamál í Contentful
Sjá nánar um myndastærðir og skerpu þeirra hér.
Hvernig sía ég mínar myndir og skrár inn í Asset-yfirlitinu?
Handbók vefstjóra
Ertu með ábendingu eða spurningu?