Fara beint í efnið
Stafrænt Ísland Forsíða

Stafrænt Ísland

Hönnunarkerfi

Hönnunarkerfi Ísland.is er ætlað að samræma nálgun í hönnun mismunandi hluta verkefnisins. Heildarsamræmi í hönnun er mikilvægt fyrir notendaupplifun; bæði ánægju og skilvirkni, en ekki síður til að skapa traust.

Hönnunarkerfið auðveldar okkur að setja nýja þjónustu í loftið á stuttum tíma, og einfaldar rekstur og viðhald stafrænnar þjónustu hins opinbera til muna.

Hönnunarkerfið er opið öllum sem vilja skoða, það er aðgengilegt í Figma. Jafnframt viðhöldum við einingasafninu Ísland UI sem er okkar útfærsla á hönnunarkerfinu í React.

Aðgengileg og aðlaðandi

Hönnun þarf að vera skýr, einföld og aðgengileg. Hún þarf að standast aðgengisstaðla, en við viljum líka hafa viðmótið aðlaðandi vegna þess að útlitið hefur áhrif á upplifun notandans af þjónustunni.

Einfaldleiki

Gagnsæi í viðmóti

Skýr skilaboð, skýr virkni

Endurtekin mynstur

Við reynum að halda samræmi í viðmóti og notendaflæði, og notum sama mynstur í viðmóti fyrir samskonar aðgerðir. Þeim mun færri mynstur því betra, án þess þó að það komi niður á notendareynslu fyrir hvert og eitt tilfelli.

Efnið fyrst

Við reynum eftir fremsta megni að láta efnið stjórna hönnuninni. Við tökum ákvarðanir á forsendum efnisins og þarfa notandans hvað það varðar.

Hönnun (sérstaklega þjónustuhönnun) byggir að miklu leyti á texta. Þess vegna skiptir máli að vinna með texta sem hefur merkingu, ekki lorem ipsum eða annan uppfyllitexta.

Lógó Ísland.is

Ísland.is lógó

Sækja lógó á

Fleiri útgáfur af lógóinu og reglur um notkun þess eru aðgengilegar í Figma.