
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsfólk í eldhúsi - HSN Blönduósi
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.08.2026
Umsóknarfrestur
28.08.2026
Starfsfólk í eldhúsi - HSN Blönduósi
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Blönduósi leitar að öflugum og samviskusömum starfsmanni til starfa í eldhús. Staðan er tímabundin til eins árs með möguleika á framlengingu. Um er að ræða fjölbreytt starf í góðu starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð, gott samstarf og jákvætt viðmót. Starfið er í dagvinnu með vinnu aðra hverja helgi.
Hér má sjá upplýsingar um HSN á Blönduósi: Fjölbreytt starfsemi og hlýtt starfsumhverfi
Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn fyrir allar starfsstöðvar
Áhugasamir eru hvattir til að senda tölvupóst fyrir frekari upplýsinga á adalheidur.magnusdottir@hsn.is eða helga.margret.johannesdottir@hsn.is
Helstu verkefni og ábyrgð
Undirbúningur og framreiðsla máltíða samkvæmt verklagi
Aðstoð við matreiðslu og skömmtun matar
Aðstoð við mat í matsal
Frágangur, uppvask og þrif í eldhúsi og tengdum rýmum
Móttaka og meðhöndlun matvæla og annarra aðfanga
Viðhalda góðu hreinlæti og vinna samkvæmt gildandi reglum um matvælaöryggi
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
Áhugi á starfi í eldhúsi og þjónustu við skjólstæðinga og starfsfólk
Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
Frumkvæði, skipulagshæfni og vandvirk vinnubrögð
Góð íslensku- eða enskukunnátta skilyrði
Hreint sakavottorð og gott orðspor
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélagið Samstaða hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af prófskírteinum ef við á. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Helga Margrét Jóhannesdóttir
yfirhjúkrunarfræðingur svæðis
Tölvupóstur: helga.margret.johannesdottir@hsn.is
Sími: 432 4100

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsfólk í eldhúsi - HSN Blönduósi
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.08.2026
Umsóknarfrestur
28.08.2026