
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði í heimahjúkrun - HSN Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
50-80%
Starf skráð
01.07.2026
Umsóknarfrestur
13.07.2026
Sjúkraliði í heimahjúkrun - HSN Akureyri
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Akureyri óskar eftir jákvæðum og metnaðarfullum sjúkraliða í heimahjúkrun. Leitað er að einstaklingi sem hefur ánægju af því að starfa náið með fólki í sínu nánasta umhverfi og leggur áherslu á hlýja og faglega þjónustu. Um er að ræða 50-80% starf í vaktavinnu, ótímabundið. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða við upphaf hausts.
Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn | Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Hér má sjá upplýsingar um HSN Heilsueflandi Vinnustaður
Helstu verkefni og ábyrgð
Vitjanir í heimahús
Aðstoða við grunn- og persónulega hjúkrun
Vinna með skjólstæðingum og aðstandendum þeirra
Vinna í teymum sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga
Önnur tilfallandi störf
Hæfniskröfur
Fullgilt sjúkraliðapróf og íslenskt starfsleyfi
Bílpróf er skilyrði
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af starfi í heimahjúkrun
Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
Áhugi og góð reynsla af teymisvinnu
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Góð íslenskukunnátta
Hreint sakavottorð og gott orðspor
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af starfsleyfi og prófskírteini, námsmat frá SLFÍ ef við á.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
Starfshlutfall er 50-80%
Umsóknarfrestur er til og með 13.07.2026
Nánari upplýsingar veitir
Ingibjörg Lára Símonardóttir
yfirhjúkrunarfræðingur svæðis
Tölvupóstur: inga.lara.simonardottir@hsn.is
Sími: 432 4600

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði í heimahjúkrun - HSN Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
50-80%
Starf skráð
01.07.2026
Umsóknarfrestur
13.07.2026