
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Deildarstjóri á hjúkrunardeild - HSN Blönduósi
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.08.2026
Umsóknarfrestur
01.09.2026
Deildarstjóri á hjúkrunardeild - HSN Blönduósi
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Blönduósi auglýsir lausa stöðu deildarstjóra hjúkrunardeildar. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. október 2026 eða eftir samkomulagi. Deildarstjóri ber faglega, stjórnunarlega og rekstrarlega ábyrgð á hjúkrun á hjúkrunarsviði og gegnir lykilhlutverki í að tryggja öfluga þjónustu, fagmennsku og vellíðan skjólstæðinga og starfsfólks. Starfið felur meðal annars í sér leiðtoga- og mannauðshlutverk, þróun þjónustu og virka þátttöku í gæðastarfi og umbótum. Næsti yfirmaður deildarstjóra er yfirhjúkrunarfræðingur svæðis á Blönduósi.
Á hjúkrunardeild eru samreknar þrjár deildir. Deild A sem er blönduð sjúkra- og hjúkrunardeild, deild B sem er hjúkrunardeild og svo dvalardeild. Rýmin eru samtals 34.
HSN leggur áherslu á jákvætt og styðjandi starfsumhverfi þar sem fagþekking, samvinna og metnaður til þróunar þjónustunnar eru í fyrirrúmi.
Möguleiki er á aðstoð við útvegun húsnæðis.
Hér má sjá upplýsingar um HSN á Blönduósi: Fjölbreytt starfsemi og hlýtt starfsumhverfi
Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn fyrir allar starfsstöðvar
Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg ábyrgð á hjúkrunarþjónustu sem veitt er á hjúkrunarsviði
Dagleg stjórnun og rekstur hjúkrunardeildar
Almenn mannauðsmál s.s. leiðsögn, stuðningur og fagleg uppbygging starfsfólks
Tryggja að rekstur og starfsmannamál séu í samræmi við fjárhagsáætlun
Skipulagning vakta og mannafla
Þátttaka í klínísku starfi
Efling jákvæðra vinnustaðamenningar og samstarfs
Ábyrgð á gæðum þjónustu og innleiðingu verklags og umbóta
Þátttaka í þróunarverkefnum og stefnumótun deildar
Virk teymisvinna og samstarf þvert á fagstéttir og stofnun
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi og a.m.k. 5 ára starfsreynsla við hjúkrun
Viðbótarmenntun á sviði heilbrigðisvísinda eða stjórnunar er kostur
Reynsla af stjórnun eða sambærilegu starfi er kostur
Sterk leiðtogahæfni
Frábær samskiptahæfni og jákvætt viðmót
Frumkvæði, góð skipulagshæfni og lausnamiðuð nálgun
Drífandi og faglegur metnaður
Þekking á RAI-mati er kostur
Góð íslensku- og enskukunnátta
Hreint sakavottorð og gott orðspor
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af prófskírteinum.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 01.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Helga Margrét Jóhannesdóttir
yfirhjúkrunarfræðingur svæðis
Tölvupóstur: helga.margret.johannesdottir@hsn.is
Sími: 432 4133
Viktoría Björk Erlendsdóttir
deildarstjóri
Tölvupóstur: viktoria.bjork.erlendsdottir@hsn.is
Sími: 432 4984

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Deildarstjóri á hjúkrunardeild - HSN Blönduósi
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.08.2026
Umsóknarfrestur
01.09.2026